„Ástandið hérna er hrikalegt“

Hilmar átti upphaflega að vera á hóteli í miðbæ Kænugarðs. „Mínir menn hérna úti voru búnir að átta sig á hlutunum og fengu annað hótel fyrir mig í útjaðri borgarinnar.“
Hilmar segir lætin einskorðast við miðbæinn. „Ástandið hérna er hrikalegt. Það er búið að loka öllum leiðum að miðbænum. Einnig er búið að loka neðanjarðarlestarkerfinu. Í miðbænum eru allar opinberar byggingar.“
Hann segist hafa verið heppinn að hafa ekki komið degi fyrr til Kænugarðs. „Ef ég hefði komið degi fyrr hefði ég getað lokast inni í miðbænum.“
Að komast frá Úkraínu verður ekki vandamál fyrir Hilmar. „Flugvöllurinn er sem betur fer sömu megin við fljótið [Dnieper fljótið] og ég er. Brúin yfir það er lokuð. Úr því að ég er réttu megin við fljótið mun ég komast á flugvöllinn,“ segir Hilmar.
Lögreglan í Úkraínu sótti að mótmælendum í dag, sem hafa haldið sig á Sjálfstæðistorginu í miðborg Kænugarðs í nokkra mánuði. Að minnsta kosti níu manns létust í átökunum í dag, þar af fjórir lögreglumenn. Sprengingar hafa átt sér stað og eldar loga á Sjálfstæðistorginu.
Þúsundir manna eru á torginu og leiðtogi stjórnarandstöðunnar, Arseniy Yatsenyuk segir að mótmælendur muni ekki hörfa eitt skref aftur á bak. Vitaly Klitschko, einn leiðtoga mótmælendanna hefur sagt konum og börnum að yfirgefa svæðið.
Mótmælendum var gefinn frestur til klukkan fjögur að íslenskum tíma til að hætta mótmælum og lögregla hafði umkringt sjálfstæðistorgið. Skömmu fyrir fjögur var kallað í gjallarhorni að lögreglan væri að hefja aðgerðir gegn mótmælendum. Þá var skotið úr vatnsfallbyssum á mótmælendur og lögreglan sótti fram á brynvörðum bílum.
Tengdar fréttir

Mótmælendur yfirgefa ráðhúsið í Kænugarði
Yfirvöld í Úkraínu hafa lofað mótmælendum að fella niður allar ákærur gegn þeim, samþykki það að yfirgefa opinberar byggingar sem þeir hafa haft á valdi sínu.

Janúkovítsj boðar breytingar
Forseti Úkraínu lofar að sleppa mótmælendum úr haldi eftir átakasama viku.

ESB hvetur til stjórnarskipta og kosninga í Úkraínu
Utanríkisráðherrar Evrópusambandsríkjanna gagnrýna aðgerðir gegn mótmælendum og mannréttindaástandið almennt í Úkraínu

Klitschko hótar forseta Úkraínu
Leiðtogar stjórnarandstöðunnar í Úkraínu hafa sett forseta landsins Viktori Janúkóvits, afarkosti, eftir að viðræður um lausn deilunnar sem valdið hefur ófriðarbáli í höfuðborginni Kænugarði síðustu vikur fóru út um þúfur í gær.

Mannfall í mótmælum í Venesúela
Allt er á suðupunkti í Venesúela og mikil mótmæli eru í landinu. Í gær er talið að þrír hafi látist og tugir særst.

Neyðarlögum hótað í Úkraínu
Dómsmálaráðherra Úkraínu varaði mótmælendur við því að neyðarlögum verði komið á í landinu fari þeir ekki úr ráðuneytinu, en hópur fólks ruddist þar inn í gærkvöldi og hefur bygginguna nú á valdi sínu.

Áframhaldandi ofbeldi í Kænugarði
Viktor Yanukovych, forseti Úkraínu, bauð í gær stjórnarandstöðumönnum að taka sæti forsætisráðherra og vara- forsætisráðherra í þeim tilgangi að binda endi á mótmæli og stigvaxandi ofbeldi í Kænugarði.

Kosið á ný um umdeild lög í Úkraínu
Þingmenn í Kænugarði í Úkraínu koma saman í dag á sérstökum fundi en þar er búist við því að kosið verði um hvort fella beri ný lög sem bönnuðu mótmæli í landinu, úr gildi.

Óttast frekari blóðsúthellingar
Stjórnarandstæðingar í Úkraínu fullyrða að alls hafi fimm mótmælendur látið lífið í vikunni í átökum við lögreglu.

Forseti Úkraínu úr veikindaleyfi
Viktor Yanukovych, forseti Úkraínu, snýr til baka úr stuttu veikindaleyfi dag. Veikindaleyfi forsetans vakti áhyggjur af því að hann væri í þann veg að lýsa yfir neyðarástandi í landinu.

Úkraínuforseti lagstur í rúmið
Viktor Janúkóvitsj er kominn með kvef og háan hita og ófær um að sinna störfum sínum, einmitt nú þegar mótmælin gegn honum standa sem hæst.

Pyntaður mótmælandi eftirlýstur
Mótmælandinn Dmytro Bulatov sem fannst illa útleikinn í útjaðri Kænugarðs í gær og segist hafa verið haldið í átta daga og pyntaður, er kominn á lista eftirlýstra í Úkraínu.

Janúkóvitsj kallar þingið saman
Stjórnarandstæðingar í Úkraínu hóta enn frekari átökum náist ekki nðurstaða fyrir kvöldið.

Mótmælandi pyntaður í Úkraínu
Fannst illa útleikinn í útjaðri Kænugarðs.

Ótrúlegar myndir frá mótmælunum í Úkraínu
Mótmælin í Úkraínu héldu áfram í dag og forseti landsins, Viktor Janúkóvitsj, er lagstur í rúmið vegna kvefs. Óvíst er hvenær hann tekur til starfa að nýju. Mótmælendur krefjast þess að hann segi af sér.

Sakaruppgjöf mótmælenda rædd í Úkraínu
Úkraínska þingið kemur saman í dag til þess að ræða mögulega sakaruppgjöf fyrir hundruð mótmælenda sem hafa verið handteknir síðustu vikur í landinu. Viktor Yanukovych forseti sekir slíkt koma til greina, en hann vill að þeir sem enn mótmæla komi þá til móts við stjórnvöld og fari úr stjórnarráðsbyggingum sem þeir hafa tekið yfir og rífi niður götuvígi sem víða hafa verið reist.

Viðræður í Úkraínu skiluðu litlu
Ekkert kom út úr fundi leiðtoga mótmælenda í Úkraínu með forseta landsins sem fram fór í gærkvöldi. Vitali Klitschko, einn af forsprökkum stjórnarandstöðunnar sagði að forsetinn Yanukovych hefði ekki rétt fram sáttahönd og óttast hann frekari blóðsúthellingar í landinu.

Köstuðu steinum í lögreglu
Stjórnarandstöðuþingmenn í Úkraínu saka stjórnvöld um að tefja umbætur á stjórnarskrá.

Hefur áhyggjur af framtíð Úkraínu
Úkraínski boxarinn Vladimír Klitsjkó, bróðir stjórnarandstæðingsins Vítalí, segir að Úkraína geti á augabragði breyst í einræðisríki.