Tónlist

Tom Odell skrapp í Bláa lónið

Gunnar Leó Pálsson skrifar
Vísir/Getty
Tónlistarmaðurinn Tom Odell var einkar viðkunnalegur og gaf sér tíma eftir tónleika sína í Hörpu til þess að gefa eiginhandaráritanir og leyfa fólki að fá mynd af sér með honum.

Þá óskaði hann sextán ára gamalli íslenskri stúlku til hamingju með afmælið, eftir að honum hafði borist ábending um að afmælisbarn væri í salnum.

Samkvæmt tónleikahaldaranum Guðbjarti Finnbjörnssyni var Odell mjög ánægður með ferð sína til Íslands og fór hann meðal annars í Bláa lónið og dásamaði því. 






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.