Í einhverju tilfellum getur þessi bogi verið óþægilegur, jafnvel sársaukafullur og hamlandi fyrir kynlíf. Einstaklingar sem glíma við þetta fyrirbæra geta verið með Peyronies sjúkdóminn.
Fyrir einstaklinga með þennan sjúkdóm þá getur verið erfitt eða sársaukafullt að fá standpínu (sársauki getur einnig verið til staðar þó typpið sé ekki með risi) og fyrir suma er erfitt að stunda samfarir.
Ef typpið er það bogið að það valdi sársauka eða komi í veg fyrir kynlíf þá er mikilvægt að leita til þvagfæralæknis.
Það er ekki fullvitað af hverju þetta gerist en þetta getur gerst í kjölfar meiðsla á typpinu, til dæmis við íþróttaiðkun þar sem mikið högg kemur á typpið. Þó virðist þetta þróast svona hjá sumum og gæti það verið vegna erfðaþátta en það er ekki fullvitað. Þá aukast líkurnar á þessu með aldrinum.
Hjá sumum einstaklingum læknast þetta af sjálfu sér en það er óalgengt, í flestum tilfellum þarf að leita til sérfræðings, sér í lagi ef þetta veldur þér óþægindum, hvort sem er líkamlegum eða andlegum.
Það eru ýmsar meðferðir í boði en alltaf er best að ráðfæra sig við lækni.