Tónlist

Hágrætur í myndbandi við lag um Justin Bieber

Lilja Katrín Gunnarsdóttir skrifar
Söng- og leikkonan Selena Gomez er búin að frumsýna myndband við nýja lagið sitt, The Heart Wants What It Wants.

Lagið er hluti af safni af mestu slögurum Selenu sem kemur út 24. nóvember.

Nýja ballaðan er afar dramatísk og syngur Selena um ástmann sem hún veit að hún á að segja skilið við en getur það ekki.

Margir hafa velt því fyrir sér, og nánast slegið því föstu, að lagið sé um poppprinsinn Justin Bieber en þau Selena hafa verið í haltu mér slepptu mér sambandi um árabil. Selena hefur þó ekki staðfest það.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.