Lífið

Sonur Ásgeirs Kolbeins skírður í dag

Nanna Elísa Jakobsdóttir skrifar
Ásgeir og kærastan á árshátíð 365 í apríl stuttu áður en Alexander fæddist, eins og sést.
Ásgeir og kærastan á árshátíð 365 í apríl stuttu áður en Alexander fæddist, eins og sést.
Ásgeir Kolbeins skírði í dag barnið sitt en hann og kærasta hans Bryndís Hera Gísladóttir eignuðust dreng þann 20. maí síðastliðinn. Drengurinn fékk nafnið Alexander Logi.

Þegar sonur þeirra fæddist birti Ásgeir mynd af honum á Facebook síðu sinni með eftirfarandi texta: ,,Ég fæddist 20.05.14, klukkan 20:35 og var 3.430gr (13,7merkur) og 50cm á lengd. Ég er búinn að haga mér mjög vel og veit ekki betur en að mamma og pabbi séu sammála því. Það er aldrei að vita nema að ég leyfi fleiri myndir af mér á Facebook á næstunni. Það fer eftir því hvað ég fæ mörg LIKE, eða "ghahhhghahhh" eins og við ungabörnin köllum það, " skrifar Ásgeir.

Það er skemmst frá því að segja að myndin fékk að lokum 903 „læk“ og því má leiða líkum að því að fleiri myndir birtist af barninu á næstunni. 






Fleiri fréttir

Sjá meira


×