Ásta Sigríður H. Knútsdóttir Sesselja Engilráð Barðdal, Steingrímur Sævarr Ólafsson og Vefpressan ehf. voru í dag sýknuð af fimmtán milljóna króna skaðabótakröfu fyrir ærumeiðandi ummæli í garð Gunnars Þorsteinssonar sem oft er kenndur við Krossinn. Dómur var kveðinn upp í málinu í Héraðsdómi Reykjavíkur nú klukkan 14.
Eftirfarandi ummæli voru dæmd ómerk:
„... gegn þeirri refsiverðu háttsemi sem Gunnar hefur gerst sekur um ...“.
„Talskona kvenna veit um 16 fórnarlömb: Vísbendingum rignir inn – Spannar 25 ára tímabil“.
„Talskona kvenna sem saka Gunnar Þorsteinsson í Krossinum um kynferðislegt ofbeldi segist vita samtals um 16 fórnarlömb. Í samtali við Pressuna segist hún hafa fengið vísbendingar frá konum sem saka Gunnar um kynferðislegt ofbeldi yfir 25 ára tímabil“.
„Í samtali við Pressuna segir Ásta að fyrir utan þær fimm konur sem hún heldur utan um viti hún um 9 aðrar sem saka Gunnar um kynferðisofbeldi“.
„Vitni að meintri kynferðislegri áreitni Gunnars...“
Málið, sem er býsna flókið og á sér langan aðdragandi; tengist ásökunum á hendur Gunnari, þess efnis að hann hafi áreitt sjö konur í Krossinum. Gunnar hefur ávallt haldið því fram að þessar ásakanir tengist pólitík og valdabaráttu í söfnuðinum og haldið fram sakleysi sínu.

Pressan birti nokkrar fréttir af þessum ásökunum, sú fyrsta var 23. nóvember 2010 og krafðist Gunnar þess að vefmiðillinn drægi fréttirnar til baka en þáverandi ritstjóri, Steingrímur Sævarr Ólafsson sagði miðilinn standa við fréttirnar. Í kjölfar þessa kærði svo Gunnar Steingrím Sævarr Ólafsson, Vefpressuna ehf. auk Ástu Sigríði H. Knútsdóttur og Sesselju Engilráð Barðdal fyrir meiðyrði.
Gunnar krafðist alls 15 milljóna króna í skaðabætur, fimm milljóna frá hverjum aðila fyrir sig, og afsökunarbeiðni. Einnig fór hann fram á að ummæli í tíu greinum sem birtust í fréttum Pressunar frá 23. til 30 nóvember árið 2010 yrðu dæmd ómerk.

Lögreglan rannsakaði ásakanirnar á hendur Gunnari og var niðurstaðan sú að ekki taldist ástæða til að fara lengra með málið og var kærum vísað frá. Gunnar hefur haldið því fram að það sýni og sanni að ásakanirnar hafi verið algerlega tilhæfulausar, meðan þær konur sem um ræðir hafa talað um að málið hafi einfaldlega talist fyrnt.
Aðalmeðferðin í meiðyrðamálinu stóð yfir í tvo daga, 20. og 21. maí, í sal 101 í Héraðsdómi Reykjavíkur. Færri komust inn í salinn en vildu, en salurinn er sá stærsti í húsakynnum héraðsdóms. Vísir fjallaði ítarlega um réttarhöldin og fréttir af þeim má nálgast hér að neðan.
Nánari fréttir af niðurstöðum héraðsdóms má sjá í kvöldfréttum Stöðvar 2 í kvöld.