Lífið

Brjáluð út í Vísi fyrir að segja að Nökkvi sé lélegur söngvari

Lilja Katrín Gunnarsdóttir skrifar
Sonja sendi myndband inn til strákanna sem stjórna sjónvarpsþættinum Áttan á Bravó.

Sonju finnst afar leiðinlegt að Vísir hafi kallað Nökkva Fjalar, einn af Áttustrákunum, lélegan söngvara í frétt um lagið Ó viltu vera hjá mér sem Nökkvi gaf út fyrir stuttu. Hún er ekki sammála því að hann sé falskur.

„Þú ert sko besti söngvari sem ég hef heyrt í!“ segir Sonja í meðfylgjandi myndbandi.

„Það eru allir svo öfundsjúkir út í þig Nökkvi því þú ert svo góður söngvari!“ bætir hún við með tárin í augunum og er greinilega afar hrifin af Nökkva.

„Ég elska þig Nökkvi! Vertu hjá mér!“

Hér fyrir neðan má sjá myndbandið umdeilda hjá Nökkva:


Tengdar fréttir

Biðja lögregluna og nærstadda afsökunar

"Þetta var vanhugsað af okkar hálfu og við virðum störf lögreglunnar miklu meira en þetta,“ segja félagarnir Egill Ploder, Nökkvi Fjalar og Róbert Úlfars.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.