Tónlist

Taka forskot á Ljósanótt

Klassart í góðum gír.
Klassart í góðum gír. Mynd/Einkasafn
Hjómsveitirnar Klassart og Kiriyama Family ætla að taka forskot á sæluna í kvöld og hefja Ljósanæturhelgina með pompi og prakt, þegar þær leiða saman hesta sína á Paddy's í Keflavík í kvöld.

Kiriyama Family er flestum kunnug enda þekkt fyrir að spila elektrópopp á heimsmælikvarða. Meðlimir hljómsveitarinnar eru hver öðrum hæfileikaríkari en þeir skiptast jafnan á hljóðfærum á tónleikum.

Hljómsveitina Klassart þarf vart að kynna fyrir Suðurnesjafólki. Klassart var stofnuð af systkinunum Fríðu Dís og Smára Guðmundsbörnum en hljómsveitin gaf nýverið út sína þriðju plötu, Smástirni, sem hefur hlotið góðar viðtökur.

Tónleikarnir hefjast klukkan 22.00.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.