Tónlist

Landsliðið leikur Led Zeppelin

Gunnar Leó Pálsson skrifar
Eiki Hauks syngur á tónleikunum.
Eiki Hauks syngur á tónleikunum. fréttablaðið/stefán
„Þessi tónlist er í miklu uppáhaldi hjá mér og ég held það sé ansi erfitt að finna manneskju sem fílar ekki Led Zeppelin,“ segir Smári Hrólfsson einn eigenda viðburðafyrirtækisins Dægurflugunnar, sem skipuleggur tónleika til heiðurs Led Zeppelin í Eldborgarsal Hörpu 21. mars.

Hljómsveitin sem ætlar að setja sig í spor Zeppelin er sett saman af Þóri Úlfarssyni tónlistarstjóra og er valinn maður hverju rúmi.

„Við ákváðum að halda þessa tónleika eftir velgengni ELO heiðurstónleikanna sem voru á síðasta ári.“ Dægurflugan leggur fimm hundruð krónur af hverjum miða til Mottumars. „Við viljum bara styrkja gott málefni.“

„Allir sem koma að þessu hafa brennandi áhuga á tónlist Zeppelin þannig að allir leggja sig sérstaklega mikið fram,“ bætir Smári við.

Led Zeppelin ein áhrifamesta hljómsveit tónlistarsögunnar.nordicphotos/getty
Led Zeppelin er af mörgum talin ein áhrifamesta rokkhljómsveit allra tíma. Sveitin er meðal vinsælustu listamanna heims og hafa selst um þrjú hundruð milljón plötur á heimsvísu.

Á þessum tónleikum verða spiluð bestu lög þessarar frábæru hljómsveitar. Um sönginn sjá rokkararnir Eiríkur Hauksson, Eyþór Ingi Gunnlaugsson og Stefán Jakobsson.



Tónlistarstjóri-Þórir Úlfarsson

Söngur-Eiríkur Hauksson, Eyþór Ingi Gunnlaugsson, Stefán Jakobsson

Sérstakir gestir- Birgir Haraldsson söngvari og Sigurgeir Sigmundsson gítarleikari úr Gildrunni.

Hljómsveit:

Þórir Úlfarsson, hljómborð og raddir

Gulli Briem, trommur

Kristján Grétarsson, gítar

Eyþór Úlfar Þórisson, gítar

Ingi Björn Ingason, bassi

ásamt strengjasveit

Miðasala hefst í dag klukkan 12.00 á hádegi í dag á midi.is.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×