Lífið

Ráðið í stöðu kvenna út frá legsteinum

Ugla Egilsdóttir skrifar
Heimir Janusarson, umsjónarmaður Hólavallakirkjugarðs, og Sólveig Ólafsdóttir sagnfræðingur.
Heimir Janusarson, umsjónarmaður Hólavallakirkjugarðs, og Sólveig Ólafsdóttir sagnfræðingur. fréttablaðið/gva
Félag þjóðfræðinga á Íslandi býður upp á ókeypis leiðsögn um Hólavallakirkjugarð í dag klukkan 16. Heimir Janusarson og Sólveig Ólafsdóttir sagnfræðingur ganga um garðinn og segja frá tilurð hans.

„Áður en Hólavallakirkjugarður var tekinn í notkun árið 1838 var Víkurgarðurinn eini kirkjugarður Reykvíkinga í tæp þúsund ár,“ segir Heimir.

Í nóvember síðastliðnum átti Hólavallakirkjugarður 175 ára afmæli.

„Í bókinni Minningamörk í Hólavallagarði lýsir Björn Th. Björnsson ófögru ástandi Víkurgarðs síðustu ár hans. Í hvert skipti sem var tekin gröf komu upp kistubrot og bein, því garðurinn var yfirfullur. Fátæklingar fengu kistubrotin sem eldivið, og svartur reykur er sagður hafi komið upp úr skorsteinum fátæklinga.“

Gengið verður að gröf Guðrúnar sem var fyrst manna grafin í garðinum eftir að garðurinn hafði verið tilbúinn í nokkurn tíma.

„Enginn vildi vera grafinn fyrstur í garðinum vegna þeirrar þjóðtrúar að sá fyrsti sem yrði grafinn myndi ekki rotna heldur vera vökumaður yfir garðinum.“ Einnig þótti mikilvægt að vanda valið á þeim sem yrði fyrst grafinn. „Það þótti ekki nógu fínt að jarðsetja þar fyrst vinnumann eða vinnukonu.“

Mikil saga birtist í kirkjugarðinum, sem Heimir og Sólveig koma til með að segja frá.

„Svarnir andstæðingar í pólitík frá tímum sjálfstæðisbaráttunnar liggja þarna í nánast einfaldri röð. Stöðu kvenna má lesa í út frá legsteinunum. Konur eru titlaðar apótekarafrúr, læknisfrúr, og ein er „ekkja“. Spænska veikin hafði áhrif á skipulag kirkjugarðsins, og þarna er leiði Steinunnar á Sjöundá. Við segjum frá þessu öllu í göngunni.“

Mæting er við Þjóðminjasafnið klukkan 16. Gangan stendur þangað til klukkan 17:30. Mælst er til þess að fólk sé vel klætt. Aðgangur er ókeypis.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.