Menning

Listrænt hryðjuverk og kapítalískt neysluæði

Þórður Ingi Jónsson skrifar
Bergur Þorgeirsson, tæknilegur ráðunautur bókaútgáfunnar Tófu, Anna Guðný Gröndal og Bjarni Klemenz, aðstandendur Tófu.
Bergur Þorgeirsson, tæknilegur ráðunautur bókaútgáfunnar Tófu, Anna Guðný Gröndal og Bjarni Klemenz, aðstandendur Tófu. vísir/valli
„Við höfum verið að tala um að stofna útgáfu í ár og þetta er fyrsta bókin sem við gefum út,“ segir Anna Guðný Gröndal, einn aðstandenda hinnar nýstofnuðu bókaútgáfu Tófu.

Útgáfan hefur nú sent frá sér bókina JÁ eftir Bjarna Klemenz. „Það var ekkert endilega áætlunin að gefa Bjarna út en svo kom hann með þessa bók og þá varð það rétti tíminn til að byrja á þessu. Við ætlum að gera meira á næsta ári, erum að skoða handrit og svo er jafnvel pæling að gefa út tímarit sem myndi fjalla þá um bókmenntir og menningu.

En svo er náttúrulega þessi virðisaukaskattur á bækur að koma inn, þannig að við sjáum til hvernig þetta fer,“ segir Anna en þess má geta að Benedikt Gröndal skáld er langalangalangafi hennar svo að bókmenntagenin eru svo sannarlega til staðar.

Samkvæmt Bjarna fjallar JÁ um unga listamenn sem beina reiði sinni gegn neysluæði og kapítalisma samfélagsins. „Hún fjallar um listrænt hryðjuverk í Kringlunni sem fer úrskeiðis af því að það leynist einn alvöru hryðjuverkamaður á meðal listamannanna,“ segir Bjarni.

Hann fékk hugmyndina að bókinni á ferðalagi um Asíu. „Það var rosa sýnilegt hvað það er mikil neysla og kapítalismi þar. Þess vegna gerist bókin í Kringlunni því hún er svona Mammon.“






Fleiri fréttir

Sjá meira


×