Tónlist

Syngur um ástina í nýju lagi

Lilja Katrín Gunnarsdóttir skrifar
Vísir/Getty
Tónlistarmaðurinn Jason Mraz er búinn að gefa út nýtt lag sem heitir einfaldlega Love Someone. Eins og nafnið gefur til kynna syngur Jason um ástina í laginu eins og hans er von og vísa. 

Ný plata frá Jason er væntanleg þann 15. júlí og heitir hún YES.

Jason er hvað þekktastur fyrir lagið I'm Yours af plötunni We Sing. We Dance. We Steal Things. Lagið náði efst sjötta sæti á Billboard Hot 100-listanum en lagið var alls á listanum í 76 vikur og skákaði þar með laginu How Do I Live með LeAnn Rimes sem var 69 vikur á listanum.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.