Lífið

Hringurinn kostaði um tíu milljónir

Lilja Katrín Gunnarsdóttir skrifar
Stórleikarinn Johnny Depp, 50 ára, trúlofaðist leikkonunni Amber Heard, 27 ára fyrir stuttu. Þau kynntust á setti myndarinnar The Rum Diary og staðfestu samband sitt í júní árið 2012. Skartgripasérfræðingurinn Zaven Ghanimain segir í samtali við EOnline að trúlofunarhringurinn hafi kostað um tíu milljónir króna.

„Hann lítur út fyrir að vera fimm karata. Ég trúi að hann kosti eitthvað á bilinu níu til ellefu milljónir króna,“ segir Zaven.

Johnny var áður með leikkonunni Vanessu Paradis. Þau eiga saman tvö börn, dótturina Lily-Rose, sem er fjórtán ára og Jack, sem er ellefu ára.

Johnny og Amber munu deila hvíta tjaldinu seinna á þessu ári í myndinni London Fields. Meðal annarra leikara í myndinni eru Billy Bob Thornton og Jim Sturgess.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.