Lífið

Óskar þess í hverjum mánuði að hún sé ólétt

elskar börn Nicole á fjögur börn en væri til í fleiri.
elskar börn Nicole á fjögur börn en væri til í fleiri.
Nicole Kidman hefur ekki gefið upp alla von um að eignast fleiri börn. Nicole sagði í viðtali við áströlsku útvarpsstöðina KIIS 1065 að hún vonaðist til þess í hverjum mánuði að hún væri ólétt. Nicole á börnin Connor 19 ára og Isabellu 21 árs sem hún ættleiddi með fyrrverandi eiginmanni sínum, Tom Cruise.

Hún á einnig tvö börn með eiginmanni sínum Keith Urban en langar að eignast eitt í viðbót. „Ég vonast eftir því í hverjum mánuði að ég sé ólétt en ég er það aldrei. Ég myndi hoppa af gleði ef ég væri það,“ segir hún.

„Amma mín átti yngsta barnið sitt þegar hún var 49 ára þannig að maður veit aldrei. „Ég er sjúk í börn. Ég elska börn, krakkar eru bara svo stórkostlegir,“ sagði hún í viðtalinu en viðurkenndi svo að kannski væri eiginmaður hennar, Keith, ekki á sama máli.

„Hann myndi kannski ekki hoppa af gleði ef ég væri ólétt.“






Fleiri fréttir

Sjá meira


×