Innlent

Neitar að hafa banað eiginkonu sinni

Sunna Karen Sigurþórsdóttir skrifar
vísir/gva
Maðurinn sem grunaður er um að hafa orðið eiginkonu sinni að bana á heimili þeirra í Breiðholti í nótt neitar sök í málinu.  Hann verður leiddur fyrir dómara í Héraðsdómi Reykjavíkur síðar í dag þar sem lögð verður fram krafa um gæsluvarðhald vegna rannsóknarhagsmuna. Hann verður þá væntanlega færður í einangrun á meðan rannsókn stendur yfir.

Lögreglu barst tilkynning um að kona væri látin á heimili sínu við Stelkshóla skömmu eftir miðnætti í nótt. Tilkynningin barst frá manni sem eiginmaðurinn hafði látið vita af andlátinu. Þegar lögreglu bar að garði vaknaði strax grunur um að andlát konunnar hefði borið að með saknæmum hætti. Samkvæmt upplýsingum frá lögreglu hefur maðurinn ekki komið við sögu lögreglu áður vegna sakamála.

Talið er að maðurinn hafi þrengt að öndunarvegi konunnar þannig að hún hlaut bana af.  Börn þeirra hjóna, tveggja og fimm ára, voru á heimilinu þegar atburðurinn átti sér stað en þeim hefur verið komið í umsjá barnaverndaryfirvalda.




Tengdar fréttir

Talinn hafa kyrkt konuna

Börn hjónanna, tveggja og fimm ára voru á heimilinu, en þeim hefur verið komið í viðeigandi umönnun hjá barnaverndaryfirvöldum.

„Virkilega vinalegt og gott fólk“

Nágranni hjónanna í Stelkshólum í Breiðholti segir allt hafa verið með kyrrum kjörum á stigaganginum í gærkvöld. Hann talaði við hjónin síðdegis í gær og sagði ekkert benda til þess að harmleikur væri yfirvofandi.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×