Ólafur Stephensen nýr framkvæmdastjóri FA Atli Ísleifsson skrifar 1. október 2014 10:05 Ólafur Stephensen.
Ólafur Stephensen, fyrrverandi ritstjóri Fréttablaðsins, hefur verið ráðinn framkvæmdastjóri Félags atvinnurekenda og hefur störf í dag, 1. október. Almar Guðmundsson, sem verið hefur framkvæmdastjóri FA frá 2009, hefur tekið við starfi framkvæmdastjóra Samtaka iðnaðarins. „Ólafur Þ. Stephensen er 46 ára þriggja barna faðir. Hann lét fyrir rúmum mánuði af starfi ritstjóra Fréttablaðsins og annarra fréttamiðla 365. Áður var hann meðal annars ritstjóri Morgunblaðsins, ritstjóri 24 stunda og aðstoðarritstjóri Morgunblaðsins. Ólafur starfaði einnig um skeið sem forstöðumaður upplýsinga- og kynningarmála hjá Símanum og sem forstöðumaður stefnumótunar- og samskiptasviðs hjá Samtökum atvinnulífsins,“ segir í tilkynningu frá FA. Ólafur lauk BA-prófi í stjórnmálafræði frá Háskóla Íslands árið 1992 og MSc-prófi í alþjóðasamskiptum frá London School of Economics and Political Science 1994. Þá lauk hann AMP-stjórnendanámi við IESE Business School í Barcelona árið 2010. „Ég hlakka til að takast á við spennandi verkefni hjá Félagi atvinnurekenda,“ segir Ólafur. „Baráttumál félagsins á borð við frjálst viðskiptaumhverfi, sanngjarna samkeppni og opið hagkerfi falla prýðilega að þeim skoðunum sem ég hef talað fyrir á ýmsum vettvangi. FA á sóknarfæri í að efla enn þjónustu við aðildarfyrirtækin og fjölga í hópi þeirra.“ Birgir Bjarnason, formaður Félags atvinnurekenda, segir þá hjá Félagi atvinnurekenda vera afar ánægða með að fá Ólaf Stephensen í liðið. „Það er ætlun okkar að efla félagið til enn frekari dáða og með honum ásamt því öfluga starfsfólki sem við þegar höfum á að skipa teljum við að við séum á réttri leið.“
Mest lesið „Enginn kvartað yfir því þegar ég hef skúrað“ Atvinnulíf Frestun sölu Íslandsbanka jákvæð fyrir markaðinn Viðskipti innlent Kormákur og Skjöldur flytja í Brynjuhúsið eftir algjöra yfirhalningu Viðskipti innlent Óljóst hvort breytingarnar bjargi rekstri Play Viðskipti innlent Play í frjálsu falli Viðskipti innlent Sölunni slegið á frest Viðskipti innlent Hagkaup hættir sölu á Sodastream í kjölfar mótmæla Viðskipti innlent Ekki trompast við fólk í vinnu eða á fundum Atvinnulíf „Síðan kemur í ljós að við erum í gjörólíkum störfum“ Atvinnulíf „Opinberi geirinn er að breytast og þar þarf mikinn fjölda verkefnastjóra“ Atvinnulíf Fleiri fréttir Frestun sölu Íslandsbanka jákvæð fyrir markaðinn Sölunni slegið á frest Kormákur og Skjöldur flytja í Brynjuhúsið eftir algjöra yfirhalningu Play í frjálsu falli Semja við flugfélög í Færeyjum og á Grænlandi Hagkaup hættir sölu á Sodastream í kjölfar mótmæla Frigus fór fýluferð í Landsrétt Óljóst hvort breytingarnar bjargi rekstri Play Úlfur Þór til Firma lögmanna Eins og AirBnb og Uber en fyrir tónlistarkennslu Tvískiptur fasteignamarkaður og hækkandi vaxtabyrði „Play verður áfram íslenskt“ Sækja um leyfi á Möltu Herdís hefði frekar viljað halda vöxtum óbreyttum Hér og nú fjölgar starfsmönnum Samið um 800 íbúðir á Ásbrú Allsherjarinnköllun á krabbameinsvaldandi leikföngum Rotovia kaupir mexíkóskt fyrirtæki Íbúðaverð lækkar í fyrsta sinn frá janúar Sannfærður um að niðurstaðan verði Lyfjavali í hag Hagkerfið nái andanum og spá um tveggja prósenta hagvexti næstu ár Bein útsending: Ný þjóðhags- og verðbólguspá Landsbankans Hefur lokið störfum hjá Viðreisn en vill vera á lista Ráðist í athugun hjá Skel vegna meintrar markaðsskiptingar Icelandair í samstarf við þjóðarflugfélag Portúgals Nýir eigendur Skagans stefna á að hefja starfsemi í nóvember Segir aðför Eflingar með ólíkindum Áfram engar loðnuveiðar Rekstrarfélag Ítalíu á Frakkastíg gjaldþrota Segja fullyrðingar borgarfulltrúa um Carbfix ekki standast Sjá meira