Besti bardagamaður heims í dag, léttþungavigtarmeistarinn Jon Jones, hefur neitað að berjast við Svíann Alexander Gustafsson. Jones vill þess í stað mæta Daniel Cormier.
UFC staðfesti nýverið að Alexander Gustafsson yrði næsti andstæðingur meistarans Jon Jones og átti bardaginn að fara fram á UFC 177 þann 30. ágúst. Gustafsson samþykkti það en meistarinn á enn eftir að samþykkja bardagann. Jones og Gustafsson mættust í september síðastliðinn þar sem Jones sigraði eftir hnífjafnan bardaga en enginn hefur komist jafn nálægt því að sigra Jones eins og Gustafsson.
Alexander Gustafsson lét hafa eftir sér að Jones væri hræddur við sig og væri að reyna að komast hjá því að berjast við sig. Bardaga milli Jones og Gustafsson hefur verið beðið með mikilli eftirvæntingu en forseti UFC, Dana White, er ekki hrifinn af uppátæki Jones.
Bardagi milli Jon Jones og Daniel Cormier væri ekki síður áhugaverður en það myndi varpa skugga á ímynd Jones ef hann heldur áfram að forðast Gustafsson. Dana White og aðrir stjórnendur UFC ætla að funda með Jones í vikunni og reyna að sannfæra hann um að skrifa undir samkomulagið sem kveður á um að hann og Gustafsson mætist í lok ágúst.
Hvernig sem fer kemur þetta illa út fyrir Jones sem hefur litið út fyrir að vera ósigrandi í öllum sínum UFC bardögum - nema gegn Gustafsson.
Vísir og MMA Fréttir starfa saman í umfjöllun um MMA. Ekki gleyma að setja "like" við Facebook síðu þeirra hér.
