Lífið

Segir Dorrit undir greinilegum áhrifum hip-hop menningarinnar

Kjartan Atli Kjartansson skrifar
Hér má sjá handabandið, sem Sesar A segir vera skírskotun í bandaríska rappmenningu.
Hér má sjá handabandið, sem Sesar A segir vera skírskotun í bandaríska rappmenningu.
Handaband Dorritar Moussaieff og Völu Matthíasdóttur í þættinum Heilsugengið sem var á dagskrá Stöðvar 2 í gær vakti nokkra athygli. Dorrit og Vala Matt tókust í hendur undir lok innslags sem fjallaði um að forsetafrúin og Solla Eiríksdóttir bjuggu til ljúffengar Maki rúllur. Handabandið má sjá í myndbandinu hér að neðan, en Dorrit tekur í hönd Völu Matt eftir nákvæmlega fjórar mínútur.

Handabandið var óvenjulegt og ákvað blaðamaður Vísis að fá einn af frumkvöðlum íslenskrar rapptónlistar, Sesar A, til að greina handabandið út frá fræðum hip-hop menningarinnar. Hann segir handabandið greinilega skírskotun í bandaríska götumenningu:



„Hér bregður fyrir handabandi sem hefur beina skírskotun til kveðju í götu menningu, sem á uppruna sinn í fátækrahverfi Suður Bronx, sem tilheyrir borginni Nýju Jórvík.

Um er að ræða „einföldu" útgáfuna af því sem er þekkt sem "hip-hop handaband“. Útgáfurnar eru afbrigði af tilbrigðum við hversdagslegri kveðju vesturlandabúa, gefin með hægri hendi, og fara tilþrif við handabandið eftir hversu tengdir viðkomandi aðilar eru og hversu oft þeir heilsast,“ útskýrir Sesar. 
Sesar A er einn af frumkvöðlum íslenskrar hip-hop menningar.
„Hér heima á Fróni birtist þetta fyrst í kveðju sem almennt er þekkt sem athöfnin að „gefa fimmu" (þekkt sem „give me five" hjá blökkumönnum og rómansk amerískum íbúum Bandaríkjanna). Leiða má líkur að því að þessi hefð hafi borist hingað til lands með körfuknattleik og bandarískum kvikmyndum, sem sýndu samskipti tengd íþróttinni.“

Sesar útskýrir svo fleiri afbrigði kveðja að hip-hop sið:

„Nú síðast, fyrir rúmum hálfum áratug, fór að gæta hjá yngri kynslóðum svipuð kveðja svokölluð „klesst'ann fyrir vestan" þar sem félagar heilsast með því slá létt saman laus kreftum hnefum.

Það má því leiða líkur að því að forsetafrúin sé hér í takt við þróun handabanda, undir greinilegum áhrifum hipp hopp menningar, sem telst mjög jákvæð þróun. Glöggt má sjá á glaðværum viðbrögðum Völu Matt að hún kann að meta þessa þróun og verður gaman að sjá hvernig þær stöllur þróa sitt „hip-hop handaband“.“

Sesar A gaf út plötuna Stormurinn á undan logninu árið 2001 og var hún fyrsta platan sem gefin var út á íslensku. Fyrirtækið Boris Audio gaf plötuna út. Þegar blaðamaður tók tal af rapparanum var hann á leið á Grundafjörð. Hann mun leika þar fyrir dansi í kvöld sem hluti af opnunarkvöldi kvikmyndahátíðarinnar Northern Wave. 

Sesar A stendur ennfremur fyrir keppninni Rappþulunni. Keppnin er fyrir þátttakendur 16 ára og eldri, og verður haldin í annað sinn í ungmennahúsinu Molanum í gamla miðbæ Kópvogs (staðsett á móti tónleikahöllinni Salnum). Keppnin er haldin þann 21. nóvember og er skráning hafin á heimasíðu Molans.


Tengdar fréttir

Gaf forsetanum rappplötu

Rapparinn Sesar A kom færandi hendi á Bessastaði og gaf Ólafi Ragnari Grímssyni, forseta Íslands, eintak af fyrstu rappplötunni sem gefin var út á íslensku, Stormurinn á eftir logninu.

Ekki of seint að byrja

Hnefaleikafélag Kópavogs og VBC bjóða til hátíðar í nýju húsnæði um helgina.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×