Lífið

Dregur til tíðinda í fitubollukeppninni

Jakob Bjarnar skrifar
Raggi hefur tekið afgerandi forystu í megrunarkeppninni miklu milli þeirra hlunka, hans og Gústafs Níelssonar.
Raggi hefur tekið afgerandi forystu í megrunarkeppninni miklu milli þeirra hlunka, hans og Gústafs Níelssonar. visir/Stefán
Vísir fylgist grannt með gangi mála í megrunarkeppninni miklu, milli þeirra athafnamanna Ragnars „Sót“ Gunnarssonar alías Ragga Sót og Gústafs Níelssonar. Keppnin, sem nú hefur staðið í hálfan mánuð, virðist ekki ætla að reynast eins spennandi og efni stóðu til, ef marka má Ragga sem var býsna kampakátur eftir vigtun og fitumælingu nú í morgun:

„Gústi hefur sem sagt lagt af 2,65 kíló. Helvíti góður!“ útskýrir Ragnar drýgindalega og ljóst að hann hefur aðrar fréttir merkilegri fram að færa en þær. „En, Sótarinn vippaði sér niður um 4,95! Á tveimur vikum!!! Mér sýnist þessi keppni nánast búin. Spurningin hvort við ættum ekki bara að láta Gústa skora á Sigmund Davíð Gunnlaugsson, frekar en mig, það held ég sé eini sénsinn fyrir hann að vinna svona fitubollukeppni. Þegar ég rýni í þessar tölur fæ ég ekki betur séð en Gústi sé að einum þriðja spik.“

Ekkert vantar uppá að Raggi sé kampakátur og sigurviss. „Já, ég er afar sáttur með þetta. Nú ætlum við að verðlauna okkur, félagarnir, með því að fá okkur bjúgu og uppstúf nú í hádeginu. Á Múlakaffi.“

Raggi gríðarlega ánægður með tölurnar, en Gústi síður; Raggi telur hann ekki eiga séns í svona fitubollukeppni nema kannski ef hann skorar á Sigmund Davíð.visir/stefán
Yfirlýsingagleði Ragga Sót er við brugðið og voru mælingar morgunsins ekki til að draga úr gorgeir viðmælanda Vísis nema síður sé: „Um jólin verð ég orðinn 95 kíló. Sem er mín kjörþyngd. Kjörþyngd fyrir jólin. Ég er náttúrlega í „show-biss-bransanum“ og verðum við að geta formað líkamann eftir því hvaða hlutverk við leikum hverju sinni. Og vera snögg að því. Stundum þarf maður að vera feitur og stundum mjór.“

Þegar Raggi er spurður hvað það hafi verið sem kallaði eftir því að hann væri þessi hlunkur sem hann var áður en þeir Gústaf ákváðu að fara í þessa keppni, vefst honum ekki tunga um tönn venju fremur. „Ég var að syngja inná teiknimynd, þurfti að vera djúpraddaður og fá aukna þyngd í röddina. Nú þarf ég að grenna mig því það var verið að biðja mig um að taka þátt í sýningu þar sem lögin hans Stebba Hilmars verða tekin og þá verða nokkur kíló að fjúka; þarf aðeins að toga í hreðjarnar á mér til að ná þeim háu tónum sem þar er lagt upp með.“


Tengdar fréttir

Hlunkarnir vigtaðir

Fyrsta vigtun í megrunarkeppni þeirra Ragnars Sót Gunnarssonar og Gústafs Níelssonar fór fram í morgun, og voru tölurnar sláandi.

Sjónarspil vikunnar

Myndir segja meira en þúsund orð og það er ástæða þess að hinir harðduglegu ljósmyndarar Vísis og Fréttablaðsins eru alltaf á ferð og flugi. Þeir að sjálfsögðu náðu þessu öllu saman, og meiru til, á mynd en myndirnar má sjá í þessari frétt.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×