Lífið

Léttist um 73 kíló: Sýnir fólki hvernig líkami hans lítur út í raun og veru

Lilja Katrín Gunnarsdóttir skrifar
„Mér líður vel í fötum. Mér líður ekki vel án klæða og því vil ég sýna fólki mig án klæða,“ segir John Gaude í áhrifaríku myndbandi á YouTube-síðu sinni.

John var rúm 163 kíló þegar hann ákvað að taka sig í gegn og hefur lést um 73 kíló. Eins og margir sem léttast mikið kannast við gengur húðin ekki til baka samfara þyngdarmissi og það hefur John upplifað. Hann sýnir því líkama sinn í myndbandinu til að hjálpa öðrum sem glíma við sama vandamál.

„Líkami minn er ekki eins fullkominn og fólk heldur,“ segir John í myndbandinu áður en hann afklæðir sig til að sýna hvernig hann lítur út án fata.

Margir hafa tekið myndbandi Johns fagnandi en hann endar myndbandið á þessum nótum.

„Ég vil að fólk sem horfir á þetta myndband skilji að maður á aldrei að leyfa lausri húð að stöðva mann í því að sækjast eftir draumum sínum. Og mínir draumar eru að vera mjög hamingjusamur í eigin skinni og ég er það. Burt séð frá lausri húð er ég hamingjusamur með hvaðan ég kem og hvar ég er staddur núna.“






Fleiri fréttir

Sjá meira


×