Lífið

Jólastjarnan 2014: Hrefna Karen syngur Heyr mína bæn

Lilja Katrín Gunnarsdóttir skrifar
Hrefna Karen Pétursdóttir er ein af tíu keppendum sem keppast um að verða Jólastjarnan 2014. Hér fyrir neðan má sjá atriðið sem hún sýndi fyrir dómnefnd í keppninni en hún flutti lagið Heyr mína bæn.

Hrefna Karen er ellefu ára og sannar að aldurinn skiptir engu máli þegar sannir hæfileikar eru annars vegar.

Söngkeppnin Jólastjarnan hefur verið haldin síðustu ár og í ár sóttu um þrjú hundruð  börn, yngri en sextán ára, um að komast í tíu manna úrtak fyrir framan dómnefnd. Í dómnefnd í ár eru Björgvin Halldórsson, Gissur Páll, Gunnar Helgason og Jóhanna Guðrún.

Sigurvegari keppninnar verður tilkynntur í næstu viku í Íslandi í dag en hann kemur fram á stórtónleikunum Jólagestir Björgvins eins og síðustu ár.


Tengdar fréttir






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.