Viðskipti innlent

Langþráð hjúkrunarheimili opnað á Egilsstöðum í vor

Kristján Már Unnarsson skrifar
Jón Grétar Traustason, verkefnisstjóri VHE.
Jón Grétar Traustason, verkefnisstjóri VHE. Stöð 2/Egill Aðalsteinsson.
Stærstu framkvæmdir sem ráðist hefur verið í eftir hrun á Fljótsdalshéraði standa nú yfir á Egilsstöðum, - smíði nýs hjúkrunarheimilis. Það er undir klettaborginni, sem kirkjan stendur á, sem nýja húsið rís en stærð þess og staðsetning gera það að verkum að það verður hluti af ásýnd Egilsstaða frá hringveginum. Aðalverktakar eru Vélaverkstæði Hjalta Einarssonar, VHE, og eru þeir með milli 35 og 40 manns við smíðina.

„Hér byggjum við hjúkrunarheimili fyrir Fljótsdalshérað og ríkið, 40 herbergi, og löngu orðin tímabær bygging á þessu svæði,“ sagði Jón Grétar Traustason, verkefnisstjóri hjá VHE, í viðtali í fréttum Stöðvar 2.

Byggingin verður samtals 3.300 fermetrar að stærð og er smíðuð samkvæmt verðlaunateikningu Hornsteina arkitekta og Eflu en eftirlit er í höndum Mannvits.  Áhersla var lögð á að byggingin og umhverfi hennar mynduðu hlýlegt og heimilislegt umhverfi. Þá þykir hönnun hússins uppfylla óskir um nýtingu dagsbirtu og útsýnis og setustofur opnast að brekku og útisvæðum. Einstaklingsherbergi er þannig gerð að þau verður hægt að tengja saman og samnýta sem hjónaíbúðir.

Byggingin verður hluti af ásýnd Egilsstaða frá hringveginum.Stöð 2/Egill Aðalsteinsson.
Áætla má að heildarkostnaður nálgist tvo milljarða króna, með verksamningi, jarðvegsvinnu, hönnunar- og eftirlitskostnaði og frágangi. Til að ná niður kostnaði var þó ráðist í margvíslegar sparnaðaraðgerðir, meðal annars með því að forsteypa sem flestar einingar í einingaverksmiðju VHE í Fellabæ. Áformað er að húsið verði tilbúið í febrúar og má ætla að fyrstu íbúar verði fluttir inn eftir fimm mánuði eða svo.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×