Tónlist

Semur íslenska tónlist á Spáni

Adda Soffía Ingvarsdóttir skrifar
Ásamt því að vera á fullu í tónlist, er Máni að ljúka námi í menntaskóla
Ásamt því að vera á fullu í tónlist, er Máni að ljúka námi í menntaskóla mynd/Pepa Valero
Máni Orrason er sautján ára íslenskur tónlistarmaður búsettur á Spáni. Hann gaf nýlega út smáskífuna „Fed All My Days“ sem verður á plötunni hans „Repeating Patterns“ en hún kemur út næsta vor.

Lagið var tekið upp að hluta til hér heima í Stúdíói Sýrlandi og að hluta til á Spáni. Máni flutti tveggja ára gamall til Spánar fyrst, en níu ára kom hann aftur heim.

„Ég bjó þá á sveitabæ nálægt Vík í Mýrdal og þó ég hafi aðeins búið þar í fjögur ár þá hafði þessi tími þarna mikil áhrif á mig tónlistarlega séð. Ég var líka mikið í hestum á þessum tíma og mikið úti í náttúrunni svo það gaf mér innblástur líka,“ segir hann.

Fjölskylda Mána er mikið í tónlist og hann segist hafa verið kominn með hljóðfæri í hendurnar aðeins eins árs gamall.

Í dag er Máni á lokaári í menntaskóla ásamt því að vinna á fullu í tónlistinni. „Ég er að fara að taka upp myndband við smáskífulagið og spila meira, meðal annars á tónleikum á Íslandi í desember. Markmiðið er auðvitað að standa sig á öllum sviðum og þetta er að ganga vel upp svona,“ segir Máni.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.