Lífið

Skrítið að horfa á mömmu nakta

reese witherspoon Hin 38 ára Reese Witherspoon kemur nakin fram í nýjustu mynd sinni. Nordicphotos/Getty
reese witherspoon Hin 38 ára Reese Witherspoon kemur nakin fram í nýjustu mynd sinni. Nordicphotos/Getty
Dóttur Reese Witherspoon finnst óþægilegt að horfa á nektarsenur móður sinnar.

Hin 38 ára Witherspoon kemur fram nakin í nýjustu mynd sinni, Wild, sem fimmtán ára dóttur hennar, Övu, þykir „skrítið“. „Ava er fimmtán ára og það eru atriði í myndinni sem ég þarf að útskýra fyrir henni. Ég sagði henni: „Ég er nakin í myndinni…“ og hún sagði: „Mamma, það er svo skrítið“,“ sagði leikkonan, sem framleiðir einnig Wild, við tímaritið New!.

„Ég sagði: „Ég varð að vera hugrökk, Ava,“ og ég gat ekki eingöngu haft í myndinni atriði sem mér fannst þægileg vegna þess að Cheryl var svo hugrökk að segja sögu sína. Þess vegna varð ég að segja líka frá þeim hlutum sem ég var hrædd við að leika.“ Myndin fjallar um konu sem fer í tæplega tvö þúsund kílómetra gönguferð til að jafna sig á áfalli.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×