Tónlist

Keppir um verðlaun fyrir Prisoners

Álfrún Pálsdóttir skrifar
á fullu í Hollywood Jóhann Jóhannsson semur tónlistina fyrir myndina Theory Is Evereything sem fjallar um Stephen Hawking og verður frumsýnd síðar í mánuðinum.
á fullu í Hollywood Jóhann Jóhannsson semur tónlistina fyrir myndina Theory Is Evereything sem fjallar um Stephen Hawking og verður frumsýnd síðar í mánuðinum.
Tónskáldið Jóhann Jóhannsson er tilnefndur til Public Choice Awards á The World Soundtrack Awards fyrir tónlistina í myndinni the Prisoners sem var frumsýnd við góðar orðstír í fyrra.

Um netkosningu er að ræða þar sem tónlist Jóhanns etur kappi við tónlist úr myndum á borð við Noah, Gravity, American Hustle og Frozen. Það er því í höndum almennings hver hreppir hnossið en hægt er að kjósa hér til 15. september.

Í samtali við Fréttablaðið þegar Prisoners var frumsýnd fyrir einu ári lýsir Jóhann þessu sem draumaverkefni og segir samstarfið við leikstjóra myndarinnar, Denis Villeneuve, hafa verið sérlega gott.

„Ég bjóst eiginlega ekki við að þetta yrði svona áreynslulaust enda hefur maður heyrt alls konar hryllingssögur frá fólki sem vinnur í Hollywood-maskínunni.“

Jóhann er kominn á fullt í Hollywood og með mörg járn í eldinum. Hann var að ljúka við að semja tónlistina við myndina Theory Is Everything í leikstjórn James Marsh, sem er þekktur fyrir heimildarmyndir á borð við Óskarsverðlaunamyndina Man on Wire. Myndin fjallar um Stephen Hawking og er með þeim Eddie Redmayne og Felicity Jones í aðalhlutverkum. Myndin verður frumsýnd á kvikmyndahátíðinni í Toronto síðar í mánuðinum. Einnig semur Jóhann tónlistina fyrir myndina Sicario með þeim Emily Blunt, Josh Brolin og Benicio Del Toro í aðalhlutverkum og verður hún frumsýnd á næsta ári. 






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.