Tónlist

Ný plata á leiðinni frá New Order

Þórður Ingi Jónsson skrifar
New Order á tónleikum í New York í ár.
New Order á tónleikum í New York í ár. Getty
Breska nýbylgjusveitin New Order er nú komin á samning hjá hinni goðsagnakenndu plötuútgáfu Mute Records, sem gefið hefur út fjölmargar nýbylgju- og síðpönkplötur frá árinu 1978. Verður því fyrsta plata sveitarinnar í níu ár gefin út af Mute.

New Order komu aftur saman fyrir þremur árum en seinasta plata þeirra kom út árið 2005. Hljómsveitin er líklega hvað þekktust fyrir lagið Blue Monday sem sló í gegn árið 1983 en það er mest selda 12 tommu plata allra tíma.

Hljómsveitin var stofnuð árið 1980 af þremur fyrrverandi meðlimum síðpönksveitarinnar Joy Division. Hljómsveitin lagði upp laupana eftir að söngvari hennar, Ian Curtis framdi sjálfsmorð á því ári.

„Við gætum ekki ímyndað okkur betri stað handa okkur en á Mute,“ segir hljómsveitin í fréttatilkynningu. „Á margan hátt líður okkur eins og við séum komin aftur heim þar sem við erum að snúa okkur aftur til indí-uppruna okkar.“

Hér fyrir neðan má sjá myndbandið fyrir hið sígilda lag Blue Monday.








Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.