Bíó og sjónvarp

Butler býr með kærustunni

Leikarinn mun vera yfir sig ástfanginn af kærustu sinni til þriggja mánaða.
Leikarinn mun vera yfir sig ástfanginn af kærustu sinni til þriggja mánaða.
Gerard Butler og innanhússarkitektinn Morgan Brown eru farin að búa saman.

Þau byrjuðu saman fyrr á þessu ári og segir heimildarmaður að leikarinn sé yfir sig ástfanginn af dökkhærðu dísinni.

Hann ku ætla að bera upp bónorðið á næstunni eftir aðeins þriggja mánaða samband. „Gerard er einnar konu maður núna. Þú eru farin að búa saman og núna eru þau byrjuð að ræða hjónaband,“ sagði heimildarmaðurinn.

Hinn 45 ára Butler fór í meðferð árið 2012 vegna fíknar í verkjalyf en virðist vera á beinu brautinni núna.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.