Dómur yfir Pistorius kveðinn upp 11. september Atli Ísleifsson skrifar 8. ágúst 2014 14:37 Pistorius hefur sjálfur viðurkennt að hafa skotið Steenkamp en ávallt neitað því að hafa banað henni af yfirlögðu ráði. Vísir/AFP
Thokozile Masipa, dómari í máli Oscars Pistorius, hefur tilkynnt að dómur verði kveðinn upp í málinu þann 11. september næstkomandi. Málflutningi í réttarhöldunum yfir spretthlauparanum suður-afríska lauk fyrr í dag þegar verjandi og saksóknari fluttu lokaræður sínar. Pistorius er gefið að sök að hafa skotið kærustu sína, Reevu Steencamp, til bana í febrúar á síðasta ári. Pistorius hefur sjálfur viðurkennt að hafa skotið Steenkamp en ávallt neitað því að hafa banað henni af yfirlögðu ráði. Hélt hann að um innbrotsþjóf hafi verið að ræða. Barry Roux, verjandi Oscars Pistorius, sagði í lokaræðu sinni að vegna fötlunar sinnar hafi hinn 27 ára Pistorius alist upp í ótta, og þurft að venjast þeirri hugsun að geta ekki flúið ef hætta steðjaði að. Þetta hafi valdið honum miklu óöryggi. Saksóknarinn í málinu, Gerrie Nel, hélt því fram í lokaræðu sinni í gær að ekki verði hjá því komist að dæma Pistorius fyrir morð. Sagði hann framburð Pistorius ótrúverðugan, þar sem margt hafi stangast á. Verði Pistorius fundinn sekur um morð gæti hann átt lífstíðarfangelsi yfir höfði sér.
Mest lesið Kosningavaktin: Íslendingar ganga að kjörborðinu Innlent Vaktin: Totur farnar að teygja sig til norðurs Innlent Eldri maður á gamalli Corollu ógnaði ekki lífi hjóna á nýjum Ram Innlent Hörð viðbrögð við vaxtahækkunum Innlent Sigmundur hafi viljað í kennslustund með nemendum Innlent Segir íbúafundinn ekki hafa verið nægilega upplýsandi Innlent „Allt athafnasvæði Bláa lónsins er innan varnargarða“ Innlent Tilbúin að aflýsa verkföllum í fjórum leikskólum Innlent Með hundruð kílóa af þýfi heima hjá sér Innlent Ákærður fyrir að nauðga og myrða þrettán ára stúlku Erlent Fleiri fréttir Hakkarar komu sér fyrir í kerfum fjölda fjarskiptafyrirtækja Ákærður fyrir að nauðga og myrða þrettán ára stúlku Leita móður ungabarns sem fannst látið á víðavangi Styrkja loftvarnir Norður-Kóreu fyrir hermenn og vopn Bolsonaro og félagar kærðir fyrir valdaránstilraun Trump-liðar heita aðgerðum gegn sakamáladómstólnum Útlit fyrir að Scholz leiði flokk sinn til kosninga þrátt fyrir óvinsældir Eigandi gistiheimilis handtekinn í gengslum við metanóleitrun Kostnaðurinn við krýningu Karls konungs 13 milljarðar króna Pam Bondi kemur í stað Matt Gaetz Segir notkun eldflaugarinnar fela í sér stigmögnun átaka Bættu krakkpípu við styttu Nínu Sæmundsson í Los Angeles Gaetz ætlar sér ekki að verða dómsmálaráðherra Tóku tíu úkraínska fanga af lífi Meina fyrstu trans þingkonunni að fara á kvennaklósettið Fyrsta nærmyndin af stjörnu utan Vetrarbrautarinnar Gefa út handtökuskipun á hendur Netanjahú Fjögur ungmenni nú látin af völdum tréspírans Skutu fyrstu langdrægu skotflauginni að Úkraínu Hugmynd um banana á vegg seldist á 850 milljónir John Prescott fallinn frá Siðanefndin klofin í máli Gaetz en gögn farin að leka Høiby í vikulangt gæsluvarðhald Fara fram á tveggja vikna gæsluvarðhald yfir stjúpsyninum NATO tryggi lykilinnviði eftir ætluð spellvirki í Eystrasalti Hlaut dauðadóm fyrir að eitra fyrir fjórtán vinum með blásýru Hótar að fella stjórnina í skugga „pólitísks dauðadóms“ Mafíuforingi sækist eftir þingsæti í Dyflinni Heitir peningaverðlaunum og lausn þeim sem frelsa gísla Fyrsta trans konan á þingi sætir aðför af hálfu kollega sinna Sjá meira