Lífið

Selma Björnsdóttir tekur sæti í dómnefnd Ísland Got Talent

Stefán Árni Pálsson skrifar
Hér má sjá mynd frá haustkynningu Stöðvar 2.
Hér má sjá mynd frá haustkynningu Stöðvar 2. VÍSIR/ANDRI MARINÓ
Stöð 2 kynnti nýja dómnefnd til leiks í hæfileikaþættinum Ísland Got Talent í kvöld en nýr meðlimur dómnefndarinnar er Selma Björnsdóttir.

Sem fyrr verða þau Jón Jónsson, Bubbi Morthens og Þorgerður Katrín í dómnefndinni en Þórunn Antonía situr ekki í dómnefnd þáttarins í vetur.

Nú er leitin er hafin á ný fyrir Ísland Got Talent en þátturinn sló í gegn síðasta vetur.

Stöð 2 leitar að fólki á öllum aldri sem hafa einstaka hæfileika til að syngja, dansa, leika á hljóðfæri, sýna töfrabrögð, fara með uppistand eða annað sem mun heilla þjóðina.

Skráning í þáttinn fer fram hér. 

VÍSIR/ANDRI MARINÓ
VÍSIR/ANDRI MARINÓ
VÍSIR/ANDRI MARINÓ





Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.