Tónlist

Gefa út barnabók fyrir fullorðna

Þórður Ingi Jónsson skrifar
Það er verkaskipting í hljómsveitinni.
Það er verkaskipting í hljómsveitinni. mynd/birgir breiðfjörð
„Upphaflega átti þetta að vera barnabók en síðar fannst okkur vanta smá í hana, þá gerðum við textann aðeins sérkennilegri og glæsilegri,“ segir Sveinn Haukur Magnússon, meðlimur hljómsveitarinnar Per: Segulsvið.

Hún hefur gefið út sína fyrstu ritsmíð, bókina Smiður finnur lúður. „Þetta er kannski ekki barnabók í hefðbundnum skilningi og ekki heldur hefðbundin fullorðinsbók, hún er þarna á jaðrinum. Við köllum þetta Tækifærisbók – bók sem fínt er að grípa með og gefa einhverjum ef þú veist ekki hvað á að gefa honum.“

smiður finnur lúður súrrealísk tækifærisbók.
Hljómsveitin fjármagnaði prentun bókarinnar í gegnum vefsíðuna Karolina Fund og gekk það mætavel. „Það er verkaskipting í Per: Segulsvið – Sveinn skrifar textann, Árni Þór Árnason sér um myndlistina og ég sem tónlistina,“ segir Ólafur Josephsson, annar meðlimur sveitarinnar en allir þrír meðlimirnir tóku þátt í hugmyndavinnunni í kringum bókina.

„Textinn í henni er svolítið súrrealískur en hann virkar á bæði krakka og fullorðna. Þessir tveir aldurshópar mundu örugglega finna hvor sinn húmorinn í þessu þó.“ 






Fleiri fréttir

Sjá meira


×