Innlent

Víða rafmagnslaust á Vestfjörðum

Stefán Árni Pálsson skrifar
mynd/heimasíða orkubús vestfjarðar.
Barðastrandalína er spennulaus sökum ísingar og eru íbúar á Barðaströnd því án rafmagns. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Orkubúi Vestfjarðar.

Þar kemur einnig fram að loftlína í Tálknafirði sé brotin. Jarðstrengur sér langflestum fyrir rafmagni, en nokkur hús eru án rafmagns eða keyra á varaafli. Rafmagnslaust er í hluta af sveitum Önundarfjarðar, Dýrafirði utan Gemlufalls, í vestanverðu Ísafjarðardjúpi og í Árneshreppi.

Starfsmenn Orkubúsins fylgjast vel með veðri og færð og verður farið í viðgerðir um leið og gefur.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×