Tónlist

Kósí að taka upp í þynnkunni með pabba

Þórður Ingi Jónsson skrifar
Sindri Eldon
Sindri Eldon
Tónlistarmaðurinn Sindri Eldon hefur nú gefið út fyrstu formlegu sólóplötu sína ásamt hljómsveit sinni The Ways á vegum Smekkleysu.

„Það hafði eiginlega enginn annar áhuga,“ segir Sindri og hlær. „Ég var svolítið fúll út í Smekkleysu af því að þeir skitu svolítið á sig með útgáfu þegar ég var í pönksveitinni Slugs fyrir nokkrum árum. Ég var mjög reiður út í þá en þeir hafa nú reyndar reynst mér ágætlega, ég ákvað að gefa þeim séns. Það hefur gengið betur heldur en með Slugs en ég held að þeir hafi líka alveg vitað upp á sig skömmina og verið til í að gera betur.“

Platan, sem heitir Bitter & Resentful var tekin upp í Studio Paradís og í Studio Tónaslóð með Danna Pollock og föður Sindra, Þór Eldon.

„Pabbi tók upp gítarinn og sönginn. Uppi í Tónaslóð eru alls konar gítarar, magnarar og effektar liggjandi út um allt ásamt hágæða söngupptökugræjum. Það var ótrúlega næs, maður var oft hangandi úti á Granda með pabba í þynnkunni að drekka kaffi og taka upp gítar. Það var bara mjög kósí.“






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.