Tónlist

Hæstánægður með dómana

Þórður Ingi Jónsson skrifar
Bergur Þór Ingólfsson, leikstjóri og Ívar Páll, höfundur.
Bergur Þór Ingólfsson, leikstjóri og Ívar Páll, höfundur.
„Ég er mjög sáttur með þessa dóma, þeir voru margir alveg frábærir. Það er auðvitað þannig að það eru alltaf skiptar skoðanir um öll verk en þetta verk fékk alveg frábæra dóma,“ segir Ívar Páll Jónsson, höfundur söngleiksins Revolution Inside the Elbow of Ragnar Arnarsson Furniture Painter sem frumsýndur var í Minetta Lane Theater í New York-borg í ágúst.

Tónlistinni í söngleiknum var meðal annars líkt við Radiohead og David Bowie í dómum. „Tónlistin sjálf fékk alveg rosalega góða dóma undantekningalaust, það var ekki einn einasti neikvæður dómur þannig að þetta er allt saman mjög jákvætt og gott.“

Sýningin stóð yfir tvo mánuði og segist Ívar sáttur með það en hann er nú kominn í fæðingarorlof, sem stoppar hann þó ekki í tónlistargerðinni. „Ég er alltaf að semja og það eru einhver örlög sem ég get ekki flúið. Svo á ég eftir að ákveða hvað ég geri úr því sem ég er að framleiða, það má vera annar söngleikur eða hljómplata kannski. Það er aðeins að gerjast hjá mér.“






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.