Sport

Bironas ók eins og óður maður áður en hann lést

Rob Bironas.
Rob Bironas. vísir/getty
Fyrrum NFL-sparkarinn Rob Bironas virðist hafa truflast áður en hann dó í bílslysi á dögunum.

Atburðarrásin kvöldið sem Bironas lést er ansi sérstök. Hann var í rólegheitum heima hjá sér með eiginkonunni að horfa á kvikmynd. Svo fór hann út og kom aldrei aftur heim.

Tvö atvik eru staðfest þetta kvöld þar sem Bironas hagar sér eins og brjálaður maður á götunni. Hann reynir að keyra utan í aðra bíla og þvinga þá út af götunni. Þessir tveir aðilar hringdu í 911 vegna aksturslags og hegðunar Bironas. Báðir sögðust ekkert skilja í hegðun sparkarans og þau hefðu ekki lent í neinum illdeilum við hann.

Bironas missti að lokum stjórn á bíl sínum, keyrði út af og lést.

Eiginkonan segir þau ekki hafa verið að rífast og allt hafi verið í góðu er hann fór út í bíltúr.

Bironas var aðeins 36 ára gamall. Hann sparkaði í átta ár fyrir Tennessee Titans í NFL-deildinni.

NFL



Fleiri fréttir

Sjá meira


×