Gylfi Þór: Gott að vinna loksins Everton Tómas Þór Þórðarson skrifar 24. september 2014 10:30
Gylfi Þór Sigurðsson var á skotskónum gegn Everton í 3. umferð enska deildabikarsins í gærkvöldi þegar Swansea komst áfram með 3-0 sigri. Hafnfirðingurinn spilaði vel í leiknum, en Swansea var betri aðilinn og átti svo sannarlega skilið að vinna leikinn. „Það er alltaf gott að komast í næstu umferð. Mér fannst við spila mjög vel og stýra leiknum frá fyrstu mínútu,“ sagði Gylfi Þór við heimasíðu Swansea eftir leikinn. „Við skoruðum þrjú mörk, héldum hreinu og sköpuðum færi til að skora fleiri mörk, en í heildina erum við sáttir.“ Það var gott fyrir Swansea að komast aftur á sigurbraut eftir tvö töp í röð í deildinni gegn Chelsea og Southampton. „Við spiluðum ekki illa í síðustu tveimur leikjum þrátt fyrir töp. Það var svolítið erfitt að missa mann af velli gegn Southampton. Okkur tókst næstum því að ná í stig þar, en við sýndum úr hverju við erum gerðir í kvöld.“ Sigurinn í gær var sá fyrsti hjá Swansea á Everton í sögu félagsins. „Það er gott að vinna þá loksins. Það mikilvæga er samt að vera í pottinum þegar dregið verður annað kvöld,“ sagði Gylfi Þór Sigurðsson. Markið hans Gylfa má sjá í spilaranum hér að ofan og viðtalið á heimasíðu Swansea í heild sinni hér að neðan.
Enski boltinn Tengdar fréttir Arsenal féll úr leik | Gylfi skoraði í öruggum sigri Swansea Tíu leikir fóru fram í 3. umferð enska deildarbikarsins í kvöld. 23. september 2014 20:38 Gylfi skoraði annað mark Swansea | Myndband Gylfi Þór Sigurðsson skoraði annað mark Swansea í 3-0 sigri á Everton í 3. umferð enska deildarbikarsins í kvöld. 23. september 2014 23:04 Mest lesið Segir fótboltamönnum að halda sig frá McGregor Fótbolti Hareide segir að þjálfaraferlinum sé lokið Fótbolti Vaknaði með harðsperrur: „Þetta var bara stórkostlegt“ Körfubolti Baldur galdraði fram vörnina sem sló Ítalina kalda Körfubolti Arnar betur í stakk búinn en Eyjólfur og Arnar Þór Fótbolti Harry Potter í ástralska landsliðinu Sport Albert sá sögulegan sigur strákana okkar og Martin stríddi Ítölum Körfubolti HK gaf leik gegn Herði: „Ekki nýtt vandamál fyrir okkur á landsbyggðinni“ Handbolti Þjálfari FH með hljóðnema á sér: „Massa reynsla hérna í bland við massa greddu“ Handbolti Arnar og Freyr taldir líklegastir til að taka við af Hareide Fótbolti Fleiri fréttir Liverpool væri bara í þrettánda sæti án markanna hans Mo Salah Hélt hreinu á móti Manchester City ökklabrotinn Carragher segir Salah vera eigingjarnan Refirnir skemmtu sér í Köben eftir tapið sem kostaði þjálfarann starfið Hamrarnir unnu óvæntan sigur í norðrinu Þríeykið rennur allt út á samning næsta sumar Potter orðaður við Leicester á nýjan leik Ed Sheeran biðst afsökunar á að hafa verið óboðinn gestur í viðtali við Amorim Ekkert lið með meiri forystu síðan Cantona var upp á sitt besta Roy Keane reiður: Hittu mig bara á bílastæðinu Segist enn ekki hafa fengið samningstilboð frá Liverpool „Liverpool má alls ekki leyfa Salah að yfirgefa Anfield“ „Við munum þurfa að þjást í langan tíma“ Ósannfærandi byrjun hjá Amorim Salah til bjargar og Liverpool á flugi inn í leikinn við City Úlfarnir skelltu Fulham og enn bíður Villa eftir sigri Englandsmeistararnir niðurlægðir á heimavelli Létt gönguferð í skóginum hjá Arsenal Einfalt hjá Chelsea sem sækir að toppnum Fjórtán ára á æfingum með Arsenal Fær konuna til að eiga við draugana og ætlar ekki að pissa í hornin Amorim fullur sjálfstrausts á fyrsta blaðamannafundinum Meistararnir og Skytturnar missa út lykilmenn Lewandowski fékk ekki að fara til Man. Utd Ed Sheeran hjálpaði Ipswich að ná í leikmann rétt fyrir Taylor Swift tónleika Guardiola samdi til ársins 2027 Rannsókn á hegðun David Coote enn í fullum gangi Tuchel „stelur“ Hilario frá Chelsea og tekur hann inn í teymið Amorim vill að United fái Gomes aftur Martröð fyrirliða Chelsea heldur áfram Sjá meira
Arsenal féll úr leik | Gylfi skoraði í öruggum sigri Swansea Tíu leikir fóru fram í 3. umferð enska deildarbikarsins í kvöld. 23. september 2014 20:38
Gylfi skoraði annað mark Swansea | Myndband Gylfi Þór Sigurðsson skoraði annað mark Swansea í 3-0 sigri á Everton í 3. umferð enska deildarbikarsins í kvöld. 23. september 2014 23:04