Íslenski boltinn

Uppbótartíminn: Mark ársins og klúður sumarsins | Myndbönd

Þórir Guðjónsson fór illa með dauðafæri á móti Stjörnunni.
Þórir Guðjónsson fór illa með dauðafæri á móti Stjörnunni. vísir/pjetur
Með leik og Fjölnis og Stjörnunnar í gær lauk 21. umferð Pepsi-deildar karla í knattspyrnu. Hverjir áttu góðan dag og hverjir áttu erfiðan dag? Hvað segir tölfræðin og hver var umræðan á Twitter? Vísir gerir hér upp umferðina á léttum nótum.

FH er með tveggja stiga forystu á toppi deildarinnar eftir sigur á Fram, en Stjarnan tapaði dýrmætum stigum í Grafarvoginum. Víkingar opnuðu dyrnar í Evrópubaráttunni með tapi í Kópavoginum og geta nú fjögur lið enn komist í Evrópudeildina.

Umfjöllun og viðtöl úr öllum sex leikjum umferðarinnar:

FH - Fram 4-2

Breiðablik - Víkingur 4-1

Valur - Þór 2-0

Fjölnir - Stjarnan 0-0

KR - ÍBV 3-3

Keflavík - Fylkir 0-1

Árni Vilhjálmsson skoraði þrennu á móti Víkingi.vísir/valli
Góð umferð fyrir...

... Árna Vilhjálmsson, framherja Breiðabliks

Árni hefur haft mátulega hægt um sig á tímabilinu, en hlóð svo í fyrstu þrennu tímabilsins á móti Víkingi þar sem hann skoraði þrjú ansi lagleg mörk. Ekki bara hélt hann draumi Breiðabliks um Evrópukeppni á lífi heldur er hann nú í öðru sæti yfir markahæstu menn og í harðri baráttu um gullskóinn í síðustu tveimur umferðunum.

... Evrópudrauma

Með tapi Víkings í Kópavoginum opnuðust allar dyr í Evrópudeildina upp á hátt. Breiðablik á enn möguleika á að stela Evrópusæti nýliðanna á markatölu, en Valur og Fylkir eru í enn betri stöðu. Valsmenn unnu Þór og Fylkir lagði Keflavík og geta bæði lið hæglega komist í Evrópu haldi vængbrotnir Víkingar áfram að tapa leikjum.

... Jonathan Glenn, framherja ÍBV

Framherjarnir voru svo sannarlega í sviðsljósinu í þessari umferð. Glenn skoraði líklega mark sumarsins með glæsilegri hjólhestaspyrnu í Vesturbænum á móti KR. Ofan á það setti hann tvö mörk í leiknum og er nú með tveggja marka forystu í baráttunni um gullskóinn þegar tvær umferðir eru eftir.

Keflvíkingar eru í vondum málum.vísir/daníel
Erfið umferð fyrir ...

... Keflvíkinga

Suðurnesjamenn horfðu vafalítið til leiksins gegn Fylkis í botnbaráttunni og töldu sig þar geta innbyrt þrjú stig til að losna við falldrauginn. Það tókst ekki og töpuðu lærisveinar Kristjáns Guðmundssonar, 1-0. Keflvíkingar eru áfram í harðri fallbaráttu með 19 stig, stigi meira en Framarar og eiga eftir erfiða leiki gegn Eyjamönnum úti og Víkingum heima.

... Þóri Guðjónsson, leikmann Fjölnis

Þórir bauð upp á eitt af atvikum sumarsins í leiknum gegn Stjörnunni í gær þegar hann klúðraði dauðafæri á ævintýralegan hátt. Þórir fékk boltann einn inn fyrir vörn Garðbæinga og hafði nægan tíma; kannski of mikinn tíma. Hann steig óvart á boltann og hleypti varnarmönnum Stjörnunnar í baráttuna sem hirtu af honum boltann. Þórir hefur tæplega sofið vel í nótt.

... Þorvald Árnason, dómara

Þorvaldur var eitthvað illa stemmdur í leik Breiðabliks og Víkings. Líklega var honum bara kalt. Hann missti af þremur frekar augljósum vítaspyrnum og líklega hefði hann átt að reka Ellert Hreinsson, leikmann Breiðabliks, af velli.

Bjarni Guðjónsson og hans menn eru í fallsæti.vísir/valli
Skemmtilegir punktar úr boltavaktinni:

Anton Ingi Leifsson á Fjölnisvelli:

„HA???? Hvað var þetta? Þórir Guðjónsson var sloppinn einn i gegn, leit á línuvörðinn og sá að hann flaggaði ekki og steig svo bara á boltann! Rauschenberg náði síðan að hlaupa hann uppi.“

Kolbeinn Tumi Daðason á Kópavogsvelli:

„Gunnleifur Gunnleifsson varði skot sem Ívar Örn Jónsson tók  -  Ívar lætur vaða en ekki nógu mikill kraftur í þessu. Beint á Gulla í markinu sem grípur boltann eins og appelsínu. Ekkert mál.“

Hæstu og lægstu einkunnir umferðarinnar:

Árni Vilhjálmsson, Breiðabliki - 9

Ellert Hreinsson, Breiðabliki - 8

Guðjón Pétur Lýðsson, Breiðabliki - 8

Gary Martin, KR - 8

Atli Guðnason, FH - 8

Magnús Már Lúðvíksson, Val - 8

Patrick Pedersen, Val - 8

Kjartan Dige Baldursson, Víkingi - 3

Henry Monaghan, Víkingi - 3

Michael Abnett, Víkingi - 3

Almarr Ormarsson, KR - 3

Ingiberg Ólafur Jónsson, Fram - 3

Umræðan #pepsi365

Flottasta mark 21. umferðar: Markasyrpa 20. umferðar:

Tengdar fréttir

Þórsvöllur er sá öruggasti

Úttekt Fréttablaðsins á þeim völlum Pepsi-deildarinnar sem eru með upphárri stúku leiddu í ljós að Þórsvöllur á Akureyri er sá öruggasti. Handriðið á þeim velli er mun hærra en á hinum völlunum og ætti hann þar af leiðandi að vera sá öruggasti.

Pepsi-mörkin | 21. þáttur

Fimm leikir fóru fram í 20. umferð Pepsi-deildarinnar í gær og voru þeir teknir fyrir í Pepsi-mörkunum venju samkvæmt.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×