Lífið

10 leiðir til að líta vel út á myndum

Lilja Katrín Gunnarsdóttir skrifar
Ashley Lauren Dickinson er sjálfskipaður sérfræðingur í hvernig á að líta vel út á myndum og býður upp á tíu ráð til að vera meira aðlaðandi á myndum.

1. Gefið lífinu lit

Stelpur ættu að prófa að vera með skæran varalit eða litríkan klút en strákar geta farið í ljósa skyrtu.

2. Notið hressandi bakgrunn

Passið að bakgrunnurinn sé ekki að vinna gegn ykkur. Veljið bakgrunn sem er áberandi og andstæðan við ykkur. Þannig týnist þið ekki á myndinni. Veljið bakgrunn sem er í öðrum lit en hár ykkar og klæðnaður.

3. Notið leikmuni

Stundum veit maður ekkert hvað maður á að gera við hendurnar. Prófið að halda á hvolpi, drykk eða takið lauslega um hálsmen ykkar eða bindi.

4. Lærið inná ykkar bestu hlið

Stundum er betra að halla sér aðeins í staðinn fyrir að horfa þráðbeint í myndavélina. Um að gera að æfa þetta í spegli.

5. Langur háls

Þrýstið andliti ykkar aðeins fram og ýtið öxlum aftur og niður. Þá finnið þið fyrir smá teygju. Þetta gæti virkað fáránlegt og ónáttúrulegt en gerir andlit ykkar mjórra á mynd og felur ummerki undirhöku.

6. Mjói handleggurinn

Stundum virðast handleggir manns þykkari á myndum en þeir eru í raun og veru. Prófið að halda handleggjunum aðeins frá líkamanum og þá er þetta vandamál leyst.

7. Setjið sveigju á líkamann

Það er ekki gott að standa beint fyrir framan myndavélina. Setjið smá sveigju á líkamann og færið þungan yfir á annan fótinn. 

8. Krossleggið ökla

Í þessari stöðu virka mjaðmir og fótleggir lengri.

9. Hlægið (þó það sé gervihlátur)

Reynið að hlæja dátt akkúrat þegar einhver er að taka mynd. Þið sjáið ekki eftir því.

10. Takið hina fullkomnu sjálfsmynd

Fullkomnið ljósmyndahæfileikana og takið síðan hina fullkomnu sjálfsmynd.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×