Vilja Aldísi og Áslaugu Örnu í ritaraslag Kolbeinn Tumi Daðason skrifar 31. október 2014 12:15 Aldís Hafsteinsdóttir, Guðlaugur Þór Þórðarson og Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir.
Flokksráðsfundur Sjálfstæðisflokksins fer fram um helgina þar sem miðstjórn flokksins mun leggja til að embætti 2. varaformanns Sjálfstæðisflokksins verði lagt niður en þess í stað verður ritari kjörinn. Kosið verður um embættið á fundinum. Guðlaugur Þór Þórðarson ætlar að gefa kost á sér í embættið. Þá hefur fólk innan Sjálfstæðisflokksins skorað á Aldísi Hafsteinsdóttur, bæjarstjóra í Hveragerði, að bjóða fram krafta sína. Sömu sögu er að segja um Áslaugu Örnu Sigurbjörnsdóttur, laganema og fyrrverandi formann Heimdalls, að bjóða sig fram gegn Guðlaugi Þór. Einungis einn maður hefur gegnt embætti 2. varaformanns flokksins, en það er Kristján Þór Júlíusson heilbrigðisráðherra. Hann var kjörinn í embættið í mars 2012 og endurkjörinn í febrúar 2013. Þá fékk hann einmitt mótframboð frá Aldísi og hafði sigur með 59 prósentum greiddra atkvæða en Aldís fékk 41 prósent. Aldís segist í samtali við Vísi vissulega hafa fengið áskoranir. Hún ætli þó ekki í framboð enda gegni hún nú þegar fjölda ábyrgðarhlutverka innan flokksins. Aldís segir að sér finnist skrýtið að verið sé að búa til embætti ritara. Hefði hún talið eðlilegra að leggja niður embætti 2. varaformanns án þess þó að búa til nýtt embætti. Áslaug Arna staðfestir sömuleiðis við Vísi að fólk hafi komið að mála við sig. Hún hafi þó ekki í hyggju að svara því kalli. Í skipulagsreglum Sjálfstæðisflokksins segir að annar varaformaður Sjálfstæðisflokksins sé staðgengill formanns og varaformanns í fjarveru þeirra. Hann skuli ekki gegna ráðherraembætti á vegum flokksins og skuli segja af sér taki hann við ráðherraembætti. Ekki hefur verið kosinn nýr varaformaður eftir að Kristján tók við ráðherrastöðu. Flokksráðsundurinn fer fram á Grand Hótel um helgina. Kostar 3000 krónur á fundinn en skráning fyrir flokksráðmeðlimi fer fram á heimasíðu flokksins.
Mest lesið Jökulhlaup hafið úr Mýrdalsjökli og hringveginum lokað Innlent Skökk gangstéttarhella eyðilagði líf Ragnheiðar Innlent Skipuleggjendur Druslugöngunnar þurftu fljótlega að loka fyrir innsendingar Innlent Fullkomið gagnsæi mikilvægt, greiði fyrir greiða ekki við hæfi Innlent Full ástæða til að vara foreldra við Innlent Merki Coolbet fjarlægt eftir símtal fréttamanns Innlent Með veiðistangir en neituðu því að hafa verið að veiða Innlent Útskýrir ummælin um barnlausar kattarkonur Erlent Biðst velvirðingar á myndbirtingunni Innlent Lögreglan búin að finna manninn sem beraði sig Innlent Fleiri fréttir Jökulhlaup hafið úr Mýrdalsjökli og hringveginum lokað Jökulhlaup virðist hafið úr Mýrdalsjökli Fullkomið gagnsæi mikilvægt, greiði fyrir greiða ekki við hæfi Bílakaup verðandi forseta og Druslugangan Lögreglan búin að finna manninn sem beraði sig Skipuleggjendur Druslugöngunnar þurftu fljótlega að loka fyrir innsendingar Skökk gangstéttarhella eyðilagði líf Ragnheiðar Merki Coolbet fjarlægt eftir símtal fréttamanns Bálhýsi á skógræktarsvæði á Borg í Grímsnesi Biðst velvirðingar á myndbirtingunni Með veiðistangir en neituðu því að hafa verið að veiða Full ástæða til að vara foreldra við Málið óheppilegt og mjög klaufalegt Fíkniefni á samfélagsmiðlum og bílakaup verðandi forseta Ekki verið ætlun þeirra að gera bílakaupin opinber Forstjóri Brimborgar á athyglisverðum gestalista Höllu Kæra Byko vegna límmiða úr sögunni Ármúlinn verði vel nothæfur leikskóli eftir tvær vikur Hnífamaðurinn í Lundi áfram bak við lás og slá „Hann meiddi mig ekki mikið“ Umboðsmaður barna krefst svara um nýtt námsmat Sala á fíkniefnum fari fram fyrir opnum tjöldum Ferðamennirnir lausir úr haldi eftir líkamsárás Sala fíkniefna fyrir opnum tjöldum og stemmning á Húsavík Ný líkön sýna umfang hraunsins Allt í háaloft þegar faðirinn sneri til baka úr veikindaleyfi Óbreyttir bændur í Mýrdalnum hafi ekki efni á malbiki Ragnar Þór kennir Pawel eitt og annað í kennslufræðum Segir málið hið sérkennilegasta og krefst svara Boðar laugardagsbongó Sjá meira