Tónlist

Ber að ofan og tilfinningasamur

Lilja Katrín Gunnarsdóttir skrifar
Tónlistarmaðurinn Robin Thicke er búinn að setja myndband við lagið Get Her Back á YouTube. 

Robin er ber að ofan í myndbandinu og er lagið afar hjartnæmt.

Lagið samdi Robin um fyrrverandi eiginkonu sína, leikkonuna Paulu Patton, en þau skildu í febrúar á þessu ári eftir níu ára hjónaband. Í textanum kemur meðal annars fram að tónlistarmaðurinn vilji fá annað tækifæri og byrja aftur með ástinni sinni.

Lagið er af plötunni Paula sem kemur í verslanir 1. júlí og virðist Robin staðráðinn í því að fanga ást fyrrverandi eiginkonu sinnar.


Tengdar fréttir






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.