Harmageddon

„Besta veganesti sem hægt er að gefa barni að biðja með því“

Frosti Logason skrifar
MYND/ Kirkjan.is
„Það að segja að Guð elski þig sem manneskju en fordæmi ástina sem þú berð... það er bara ofbeldi“ sagði Sigurvin Jónsson, sóknarprestur í Lauganeskirkju er hann mætti í spjall í útvarpsþáttinn Harmageddon í vikunni. Hann var þar kominn til þess að kynna sýningu kvikmyndarinnar God Loves Uganda sem sýnd var í kirkjunni í gær með pallborðsumræðum á eftir.

Sigurvin er með frjálslyndari prestum Þjóðkirkjunnar en hann hélt meðal annars svokallaða Regnbogamessu á sama tíma og Biskupinn yfir Íslandi, Agnes M. Sigurðardóttir, ögraði samkynhneigðum með mætingu sinni á Hátíð vonar, þar sem heiðursgestur var sjónvarpspredikarinn Franklin Graham, en hann er heimsþekktur fyrir kröftugan áróður sinn gegn samkynhneigð.

Sigurvin lýsti því yfir í viðtalinu að trúarlegur áróður gegn samkynhneigð væri ekkert annað en ofbeldi og var í kjölfarið spurður að því hvort hann væri ekki með þessu í mótsögn við trúsystkini sín og kennisetningar Biblíunnar.

Sigurvin vildi meina að textar sem beri með sér andúð í garð samkynhneigðar, sem til að mynda má finna í Páli Postula og þriðju Mósebók, hefðu aldrei verið miðlægir í kristnum átrúnaði fyrr enn bara núna nýlega, og þá til þess eins að berja á samkynhneigðum.

Hann sagði Biblíunna ekki vera fullkomið rit enda snérist málið ekki um það heldur hvernig hún væri notuð. Það væri aldrei réttlætanlegt að nota Biblíuna til þess að berja á fólki.

Þegar Sigurvin var spurður út í heimsóknir hans í leikskóla á höfuðborgarsvæðinu og hvort hann teldi það eðlilegt að vera með trúboð á slíkum vettvangi sagðist hann vera þeirrar trúar að besta veganesti sem hægt væri að gefa börnum væri að biðja með þeim.

Hægt er að hlusta á allt viðtalið hér.








×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.