Íslenski boltinn

Finnur Ólafsson yfirgefur Fylki

Tómas Þór Þórðarson skrifar
Finnur Ólafsson er hættur hjá Fylki.
Finnur Ólafsson er hættur hjá Fylki. vísir/valli
Finnur Ólafsson, miðjumaður Fylkis í Pepsi-deild karla í knattspyrnu, er hættur hjá liðinu, en þetta kemur fram á fótbolti.net.

Finnur varð samningslaus eftir tímabilið og ætlar Árbæjarliðið ekki að framlengja við HK-inginn sem hefur verið mikið meiddur.

Fram kemur í frétt fótbolti.net að Víkingur, Breiðablik og ÍBV hafa áhuga á Finni, en hann kom til Fylkis frá ÍBV.

Þá vilja Fylkismenn fá Ásgeir Börk Ásgeirsson aftur heim í Árbæinn, en hann liggur undir feldi þessa dagana.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×