Lífið

Birtir myndband af eiginkonu besta vinar síns halda framhjá

Lilja Katrín Gunnarsdóttir skrifar
Skjáskot úr myndbandinu.
Skjáskot úr myndbandinu.
Maður sem kallar sig Bob Barker náði því á myndband þegar eiginkona besta vinar hans var að halda framhjá með öðrum manni.

Bob lét sér ekki nægja að taka það upp heldur birtir myndbandið á YouTube fyrir alla að sjá.

Myndbandið hefur vakið mikla athygli á YouTube og hefur verið horft á það tæplega 2 milljón sinnum síðan það var birt í gær.

Einn notandi, sem kallar sig King Nipple, líst ekkert á konuna.

„Já, svona eru allar konur. Ég er viss um að hún á indælan eiginmann sem sér fyrir henni en samt glennir hún fótleggina fyrir hávaxinn gaur með flatan maga. Ekki treysta konum, þær svíkja þig á endanum,“ skrifar hann við myndbandið og eru fleiri athugasemdir að finna á YouTube í svipuðum dúr.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.