Tónlist

Black Eyed Peas koma saman aftur

Lilja Katrín Gunnarsdóttir skrifar
Hljómsveitin Black Eyed Peas, sem skipar þau Fergie, Will.I.Am, apl,de.ap og Taboo, ætlar að taka upp sína fyrstu stúdíóplötu síðan árið 2010 á næstunni. Í kjölfarið mun sveitin einnig fara á tónleikaferðalag til að kynna nýju plötuna.

„Allir í Black Eyed Peas eru sammála um að sveitin ætti að fara á tónleikaferðalag fyrir aðdáendur sína - það er ekki eins og sveitin hafi hætt þegar hún tók pásu árið 2012,“ segir vinur hljómsveitarmeðlima sem vill ekki láta nafn síns getið.

„Núna ætla þau í stúdíóið til að búa til plötu á miklum hraða og fara síðan á tónleikaferðalag eina ferðina enn.“






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.