Metin féllu í Stjörnuleik NBA í nótt og Austrið vann loksins Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 17. febrúar 2014 07:41 Kyrie Irving. Vísir/Getty
Það var nóg af stigum í Stjörnuleik NBA-deildarinnar sem fór fram í New Orleans í nótt en Austurdeildin vann þá í fyrsta sinn síðan 2010. Austurdeildin vann 163-155 eftir að hafa komið til baka og unnið lokaleikhlutann 40-29. Alls voru skoruð 318 stig í leiknum sem er nýtt met en gamla metið var 303 stig frá því í framlengdum leik í Seattle árið 1987.Kyrie Irving frá Cleveland Cavaliers var valinn maður leiksins en hann var með 31 stig og 14 stoðsendingar í leiknum. Irving hitti úr 14 af 17 skotum sínum í leiknum og skoraði alls 15 stig í fjórða leikhlutanum.Carmelo Anthony (30 stig) var einnig öflugur en hann setti met með því að smella niður átta þriggja stiga körfum og þá var LeBron James með 22 stig, 7 fráköst og 7 stoðsendingar. Það var einnig sett met í þriggja stiga körfum (30), körfum utan af velli (135) og stoðsendingum (88).Kevin Durant og Blake Griffin skoruðu báðir 38 stig fyrir lið Vesturdeildarinnar og ógnuðu stigameti Wilt Chamberlain sem er 42 stig. Austurdeildin skellti í lás í vörninni í lokin en liðið skoraði tíu síðustu stig leiksins og fékk ekki á sig stig síðustu tvær mínúturnar.
NBA Mest lesið Samherji Stefáns Teits kærður fyrir meint bit Enski boltinn Ricciardo tapar sæti sínu hjá RB Formúla 1 Viktor Gísli öflugur gegn PSG Handbolti Engin vandræði þrátt fyrir að vera manni færri nær allan leikinn Fótbolti ÍBV og Grótta með sigra Handbolti Andri Lucas lagði upp í óvæntu tapi Fótbolti Amanda lagði upp á leið sinni í riðlakeppni Meistaradeildar Evrópu Fótbolti Arsenal sneri dæminu sér í vil Fótbolti Andri Már spilaði stóran þátt í sigri Leipzig Handbolti Telur að Valsmenn nenni ekki að dansa tangóinn hans Túfa til lengdar Íslenski boltinn Fleiri fréttir Helena verður á skjánum í vetur Derrick Rose leggur skóna á hilluna Mögnuðu tímabili nýliðans Clark lokið: „Get orðið miklu betri“ Æfir eftir stæla þjálfarans og banna leikmenn í landsliðið Nóg að gera á skrifstofu Stjörnunnar Shabazz semur við Njarðvík Shaq í Stjörnuna Njarðvíkingar losa sig við Bandaríkjamanninn rétt fyrir mót Þarf ekkert að taka afa bak við hlöðu og skjóta hann Viktor aftur heim í Stjörnuna Clark slegin í augað í frumraun Woj-fréttin hættir hjá ESPN og snýr sér að öðru Bikarnum úthýst úr Höllinni: „Svekkt en skiljum ákvörðunina“ Martin gerður að fyrirliða Alba Berlin Áhorfspartí á Íslandi vekur athygli Boban kveður NBA og fer til Tyrklands Fjöldi íslenskra kvenna sá Caitlin Clark setja stigamet „Sem samfélag erum við að vakna“ Færir sig á milli liða á Suðurlandinu Njarðvík fær tvo Valin best þriðju vikuna í röð Gamli Boston Celtics miðherjinn segir að Jordan hafi aldrei unnið nein góð lið KR fær króatískan miðherja Keyrði niður körfuboltamann sem lést Frákastadrottningin spilar ekki meira á þessari leiktíð Sá besti í Lettlandi semur við KR Barkley hneykslast á smásálarlegum konum í kringum WNBA „Það verður ný og skrýtin tilfinning“ „Markmið hjá okkur að fá til okkar uppalda KR-inga“ Þórir mættur heim í KR Sjá meira