Kári á förum frá Bjerringbro-Silkeborg Henry Birgir Gunnarsson skrifar 17. febrúar 2014 06:00 hvað næst? Kári veit ekki hvar hann spilar næsta vetur. fréttablaðið/daníel „
Það er ljóst að ég er á förum enda er samningur minn hér á enda. Það er alveg óvíst hvert ég fer næst,“ segir línumaðurinn Kári Kristján Kristjánsson. Samningur hans við danska félagið Bjerringbro-Silkeborg rennur út í sumar. Félagið hefur samið við danska landsliðslínumanninn Michael Knudsen og mun því ekki semja aftur við Kára. „Ég er bara að skoða mín mál í rólegheitum en það er ekkert fast í hendi enn sem komið er. Ég myndi helst vilja vera annað hvort áfram í Danmörku eða í Þýskalandi. Ég loka samt ekki hurðinni á eitthvað annað. Ég mun eðlilega bara skoða mína möguleika næstu vikurnar.“ Kári hefur lítið fengið að spreyta sig með liðinu síðustu vikur en tekur því með jafnaðargeði. „Því er ekki að neita að ég er ósáttur við þann spiltíma sem ég hef verið að fá. Það þýðir samt ekkert að væla yfir því. Ég verð bara að nýta þau tækifæri sem ég fæ. Ég reyni að vera jákvæður enda lítið annað í stöðunni. Menn verða að vera hressir.“ Gengi Bjerringbro í vetur undir stjórn Svíans Per Carlén hefur valdið vonbrigðum. Bjerringbro ætlaði sér stóra hluti í vetur en er aðeins tveimur stigum frá því að missa af sæti í úrslitakeppninni.
Handbolti Mest lesið Kallaði dómarann tík og rúmlega það Körfubolti Verstappen áfram hjá Red Bull Formúla 1 Atli og Eiður í KR Fótbolti Syrtir í álinn hjá Frey og félögum Fótbolti Chicago Bears leita nýrra leiða til að tapa leikjum Sport Fangelsisdómur hangir yfir höfði Haaland Fótbolti Sædís tvöfaldur meistari í fyrstu tilraun Fótbolti Real Madrid ekki í neinum vandræðum með Leganés Fótbolti Salah til bjargar og Liverpool á flugi inn í leikinn við City Enski boltinn Ósannfærandi byrjun hjá Amorim Enski boltinn Fleiri fréttir Benedikt markahæstur í sannfærandi sigri Kolstad Aftur eins marks tap en nú tekur EM við Lokað á útsendingu frá generalprufu Íslands Fulltrúar ÍBV og HSÍ hafi mætt seint: „Í mínum huga er þetta algjör þvæla“ ÍBV kærði Hauka: „Hvernig gæti HSÍ verið annarrar skoðunar en reglurnar?“ Stelpur Þóris fóru illa með fyrsta mótherja Íslands Stelpurnar okkar rændar jöfnunarmarki? Olís-deild karla: FH vann stórsigur í Breiðholti og önnur úrslit Uppgjörið: Haukar - Valur 29-33 | Valur heldur í við toppliðin með sigri gegn Haukum Íslendingaliðin töpuðu bæði Ísland tapaði með minnsta mun Ekki haft tíma til að spá í EM Framarar náðu toppliðunum að stigum Frábær endasprettur hjá Janusi Daða og félögum Viggó öflugur í dramatískum endurkomusigri Aron og Bjarki fögnuðu sigri gegn Viktori Gísla Hollensku stelpurnar í fínu formi fyrir EM „Mér finnst við alveg skítlúkka“ Kári í bann fyrir „illkvittið“ högg í andlit Fæddur árið 2007, brillerar í efstu deild og fann upp á Orra Óstöðvandi Þórey gaf ekki kost á sér: „Snýst um hlutverk mitt innan liðsins“ Frábær sigur hjá Orra og félögum á móti PSG Kristján lét að sér kveða þegar sigurgangan hélt áfram Súrt kvöld fyrir Íslendingaliðin í Meistaradeildinni „Langstærsti búningasamningur sem HSÍ hefur gert“ Viktor mætir Aroni: „Hann var átrúnaðargoðið mitt“ Landsliðin spila í Adidas næstu árin „Eigum ekki að setja sálfa okkur í þessa stöðu“ „Bara svona skítatilfinning“ Kemur liðsfélaga sínum til varnar: „Einn af uppáhaldsgaurunum mínum“ Sjá meira