Lífið

Neil Patrick Harris verður kynnir á Óskarsverðlaunahátíðinni

Lilja Katrín Gunnarsdóttir skrifar
vísir/getty
Leikarinn Neil Patrick Harris verður kynnir á Óskarsverðlaunahátíðinni sem fer fram þann 22. febrúar næstkomandi.

Neil tilkynnti þetta í myndbandi sem hann deildi á Twitter-síðu sinni.

Neil var kynnir á Tony-verðlaununum í fyrra og á Emmy-verðlaunahátíðinni árið 2013 og 2009. Það þýðir að hann á aðeins eftir að kynna Grammy-verðlaunin til að hafa verið kynnir á öllum stærstu verðlaunahátíðunum vestan hafs.

Óskarsverðlaunahátíðin verður sýnd í beinni útsendingu á sjónvarpsstöðinni ABC en í fyrra var það Ellen DeGeneres sem var kynnir hátíðarinnar. Þá horfðu um 45,4 milljónir manns á útsendinguna.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×