Lífið

Hefur slæma reynslu af körlum

Poppdívan vill vera ungum söngkonum sem eru að stíga sín fyrstu skref gott fordæmi.
Poppdívan vill vera ungum söngkonum sem eru að stíga sín fyrstu skref gott fordæmi. Nordicphotos/Getty
Lady Gaga segir að karlmenn hafi reynt að nota hana kynferðislega þegar hún var að byrja í tónlistarbransanum.

Hin 28 ára poppstjarna þurfti að ýta frá sér karlmönnum sem hún vann með þegar hún var að byrja í bransanum. Núna vill hún deila reynslu sinni með ungum söngkonum sem eru í sömu sporum og hún var í á sínum tíma.

„Ég hef mjög slæma reynslu af karlmönnum í hljóðverinu. Mér fannst mjög óþægilegt að vera í kringum þá. Mér leið ekki eins og ég væri þarna út af söngröddinni minni heldur meira vegna þess að þeir vildu notfæra sér mig,“ sagði hún í viðtali við The Times.

„Þegar konur sem eru í þessum bransa lesa þessa grein vonast ég til að þær láti ekki fara illa með sig. Ég vona að ég geti verið dæmi um það að ef þú ert nógu hæfileikarík þá geturðu lagt hart að þér og látið drauma þína rætast.“

Gaga, sem er þessa dagana á tónleikaferðinni Artpop Ball, segir að poppbransinn sé fullur af „hákörlum“ og að maður megi ekki láta vaða yfir sig. „Ég er svona hreinskilin vegna þess að ég vil sýna gott fordæmi.“






Fleiri fréttir

Sjá meira


×