Lífið

Níu ára metnaðarfullir ritstjórar

Adda Soffía Ingvarsdóttir skrifar
Þær Heiða Rachel Wilkins og Dagný Rós Hlynsdóttir með tímaritið sitt.
Þær Heiða Rachel Wilkins og Dagný Rós Hlynsdóttir með tímaritið sitt. Vísir/GVA
Vinkonurnar Dagný Rós Hlynsdóttir og Heiða Rachel Wilkins eru níu ára metnaðarfullar stelpur í 4. bekk í Seljaskóla. Þær tóku sig til og gáfu út tímarit á dögunum, sem þær seldu í hverfinu til styrktar góðu málefni. Fyrsta tölublaðið sló svo í gegn að nú er annað tölublað á leiðinni.

„Við vorum bara úti í bílskúr heima hjá Heiðu, við máttum það alveg, og við fundum ekkert að gera. Svo stakk Heiða upp á að við myndum gera svona blað, alveg eins og mamma hennar hafði gert þegar hún var lítil,“ segir Dagný um það hvernig hugmyndin af blaðinu kviknaði.

Blaðið þeirra fékk nafnið Ský og verður um tíu blaðsíður. „Við vorum að reyna að finna nafn á blaðið og fengum svo hugmyndina af því að blað mömmu Heiðu hét Dropar. Við ætluðum fyrst að láta það heita Sól eða eitthvað þannig, en ákváðum svo Ský,“ segir Dagný.

Tímaritið þeirra er uppfullt af skemmtilegu efni eins og orðasúpum, krossgátum, bröndurum og myndum sem þær teikna og er hægt að lita.

„Svo sögðum við eigum við ekki að taka viðtal við einhvern, er ekki alltaf þannig í svona blöðum? Þannig að við tókum viðtal við bróður minn,“ segir hún.

Blaðið ætla þær að selja í hverfinu sínu á næstu dögum og rennur allur ágóði af sölunni til Rauða krossins, en þær velja nýtt góðgerðarmál til að styrkja í hverju blaði. Blaðið mun kosta 250 krónur. „Það kostaði 150 krónur áður en svo sögðu allir að það væri svo flott að það ætti að kosta meira. Þá safnast líka meiri peningur.“






Fleiri fréttir

Sjá meira


×