Skoðun

Ljósin loga lengur

Áslaug Hulda Jónsdóttir skrifar
Í Garðabæ er kveikt lengur á ljósastaurunum en í nágrannasveitarfélögunum, grasið er slegið oftar, snjómokstur tíðari, sorpið er oftar tæmt og bæjarbúar fá aðstoð við að fjarlægja garðaúrgang og jólatré. Lögð hefur verið mikil áhersla á snyrtilegt og fallegt umhverfi. Garðabær er eina sveitarfélagið á Íslandi sem hefur innleitt Barnasáttmála Sameinuðu þjóðanna og var fyrst til að innleiða Lýðræðisstefnu. Börn komast yngri inn á leikskóla og niðurgreiðsla til dagforeldra er meiri hér en annars staðar. Þetta og fleira gerir Garðabæ að góðum bæ.

Garðabær er einn eftirsóttasti staðurinn til að búa á

Sveitarfélag kemst ekki í svo góða stöðu af sjálfu sér og hvorki fyrir slysni né heppni. Það er ástæða fyrir því að hér eru góðir skólar, öflugt íþrótta- og tómstundastarf fyrir alla, öruggt samfélag sem einkennist af samkennd og jákvæðni, nálægð við einstaka náttúru og gott skipulag. Forsendan fyrir þessu öllu saman er traust fjárhagsstjórn. Hún er undirstaða góðrar þjónustu og alls þess sem gerir sveitarfélag að góðum stað til að búa á.

Garðbæingar eru ánægðir með þjónustuna í bæjarfélaginu. Það er líka góð og gild ástæða fyrir því. Einn af lykilþáttum í þjónustu íbúanna hefur verið valið. Við höfum lagt áherslu á það að bæjarbúar hafi val um fjölbreytta og ólíka valkosti hvort sem það eru skólar, íþrótta- og tómstundastarf, heimaþjónusta eða annað. Með valinu færum við valdið til fólksins og ánægja Garðbæinga er afleiðing af því.

Höldum áfram að gera betur

Tækifærin eru víða og við þurfum að halda áfram að jafnt grípa þau sem og að búa til fleiri. Við eigum að vera framsækin og metnaðarfull. Í samvinnu við íbúa Garðabæjar höfum við náð að byggja upp sterka stöðu bæjarins. Við eigum að efla og virkja enn frekar þann félagsauð, þekkingu og reynslu sem er innan frjálsra félaga, grasrótarsamtaka og annarra hópa með aukinni samvinnu, samráði og stuðningi.

Við þurfum að gefa í og gera stórátak í viðhaldi gatna, stíga, lóða og mannvirkja bæjarins. Fjölga smábarnaleikskólum og efla dagforeldrakerfið. Þéttum net göngu-, hlaupa- og hjólreiðastíga milli hverfa, opinna svæða, upplandið og við bæjarmörk. Merkjum betur minjar og sögufræga staði og aukum aðgengi að þeim. Við munum gera þetta allt saman og fleira af því að við getum það. Og við getum það af því að Garðabær hefur verið og verður áfram rekinn með traustri og skynsamlegri fjárhagsstjórn.

Garðabær á að vera áfram í fremstu röð bæjarfélaga, bæði í þjónustu við íbúa og rekstri sveitarfélagsins enda fer þetta tvennt saman. Við viljum halda áfram að efla gott og jákvætt samfélag fyrir alla.




Skoðun

Skoðun

Kona, vertu ekki fyrir!

Elín Björg Jónsdóttir,Halldóra Sigríður Sveinsdóttir,Hrafnhildur Lilja Harðardóttir skrifar

Sjá meira


×