„Þessi hátíð er upprunalega sett saman af evrópskum útvarpsstöðum og aðstandendum evrópskra sumartónlistarfestivala og hefur þróast í að vera ansi stór vettvangur fyrir til dæmis bókara ýmissa festivala og þá sem að vilja uppgötva nýja tónlist,“ útskýrir Sigtryggur. Sigtryggur og Grímur Atlason, framkvæmdastjóri Iceland Airwaves-hátíðarinnar eru á leið á hátíðina og verða með kynningu á íslenskri tónlist á hátíðinni.

„Vintage Caravan var hins vegar valin af Rás 2 því útvarpsstöðvar í Evrópu fá að velja sveit til að koma fram á hátíðinni.“
Það getur verið erfitt að komast inn á hátíðina. „Það kemur alltaf fulltrúi frá Eurosonic á Airwaves-hátíðina og skoðar íslenskar hljómsveitir en það getur verið erfitt að komast inn á hátíðina,“ segir Grímur Atlason.
Á hátíðinni verða Ebba-verðlaunin einnig veitt og eiga Íslendingar sigurvegara annað árið í röð.

Hljómsveitir geta fengið mikla athygli á hátíðinni enda mikið af svokölluðu bransafólki á hátíðinni sem getur látið hlutina gerast.
„Hljómsveitin Fm Belfast fékk til dæmis mikla athygli árið 2010 og margar bókanir í kjölfar hátíðarinnar,“ bætir Grímur við. Ásgeir Trausti spilaði á hátíðinni í fyrra og síðan þá hefur hann landað útgáfusamningi og höfundarréttarsamningi og má eflaust segja að Eurosonic hafi hjálpað til. „Ætli hljómsveitin Franz Ferdinand sé ekki stærsta nafnið sem hefur skotist upp á stjörnuhimininn í gegnum hátíðina,“ segir Grímur.
Á ári hverju er ein svokölluð fókusþjóð á hátíðinni sem færir henni sérstaka athygli en komið hefur til tals að Ísland verði fókusþjóð Eurosonic árið 2015 og gæti það gert ýmislegt fyrir íslenska tónlist.